Óeirðirnar í Belfast á Norður-Írlandi héldu áfram í gærkvöld. Mótmælendur kveiktu elda og frömdu skemmdarverk en lögreglan svaraði með því að sprauta vatni til að koma fólki á brott. Sextán voru handteknir og tólf lögreglumenn slösuðust en lögreglan segir ástandið þó hafa verið skárra en á þriðjudagskvöld.
Kveikjan að mótmælunum er hrottaleg árás í Belfast á mánudagskvöld þegar maður var margítrekað stunginn og skorinn með hnífi. Þrítugur Sómali, sem er með dvalarleyfi í Bretlandi, hefur verið ákærður fyrir árásina og var leiddur fyrir dómara í gær. Mótmælin beinast að innflytjendum.
Mótmælendur köstuðu bensínsprengjum og grjóti að lögreglu þegar hún reyndi að koma í veg fyrir að mótmælendurnir kæmust að hóteli þar sem hælisleitendur eru hýstir. Bensínsprengjurnar slösuðu nokkra lögreglumenn.
Hilary Benn ráðherra málefna Norður-Írlands í bresku ríkisstjórninni segir við Sky News að ábendingar hafi borist um að fólk hafi verið stöðvað í bílum sínum á leið til vinnu og spurt um þjóðerni þessi. „Þetta er ótækt,“ segir Benn.
Þá var hjúkrunarkona áreitt þegar hún var á leið til vinnu vegna húðlitar síns og stærsta moska Norður-Írlands var lokuð í fyrsta sinn í þau hátt í 50 ár síðan hún hefur verið starfrækt. „Það er mikilvægt að fólk átti sig á þeim ótta sem hefur skapast, sérstaklega hjá þeim sem voru hræddir og jafnvel brenndir út úr húsunum sínum af grímuklæddum óþokkum vegna húðlitar síns,“ sagði Benn.
Ungir karlmenn útsettir fyrir ofbeldi
Mark Rowle yfirlögregluþjónn í Lundúnum sagði við BBC í morgun að aukin hætta hefði skapast af öfgafullum ummælum á netinu. Þetta eigi sérstaklega við um unga karlmenn sem séu með ofbeldi á heilanum. „Þeir horfa á myndskeið af aftökum íslamista, ofbeldi öfgahægrimanna, árásir á skóla í Bandaríkjunum og ofbeldi gegn konum. Þeir tileinka sér enga hugmyndafræði, þeir eru bara helteknir af ofbeldi.“
Lögreglan birti í morgun myndir af fólki sem hún vildi ræða við vegna óeirðanna á þriðjudag. Þeir eru grunaðir um að hafa raskað friði með alvarlegum hætti. Ryan Henderson aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði á blaðamannafundi í dag að ofbeldisfull hegðun af þessum toga yrði ekki liðin.