Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í hádeginu eftir 10 ára dreng. Hann fannst skömmu síðar. Síðast hafði vitað um ferðir hans á Melabraut á Seltjarnarnesi um hálfáttaleytið í morgun.
Þau sem gátu gefið upplýsingar um ferðir drengsins, eða vissu hvar hann var að finna, voru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.