Tími þjóðarsorgar liðinn og fánar dregnir aftur að húni eftir útför Haraldar

Tími þjóðarsorgar liðinn og fánar dregnir aftur að húni eftir útför Haraldar

Tími þjóðarsorgar liðinn og fánar dregnir aftur að húni eftir útför Haraldar

Haraldur Noregskonungur var borinn til grafar í Osló í dag að viðstöddu fjölmenni.

Kista konungs var flutt frá konunglegu kapellunni í konungshöllinni til dómkirkju borgarinnar klukkan tíu í morgun. Fremst í líkfylgdinni voru nýr konungur, Hákon VIII og dóttir hans, krónprinsessan Ingiríður Alexandra. Margt kóngafólk, þjóðarleiðtogar og -höfðingjar fylgdu í kjölfarið. Þar á meðal var Halla Tómasdóttir forseti Íslands.

Lögreglan gerir ráð fyrir að vel yfir 50 þúsund manns hafi raðað sér upp við Karls Jóhanns-götu í miðborginni til að fylgjast með líkfylgdinni. Talið er að nærri 120 þúsund hafi verið samankomnir í miðborginni um hádegisbil.

Eftir athöfn í dómkirkjunni var kista konungs flutt til Akershus-kastala. Í kastalakirkjunni er grafhýsi þar sem konungurinn var lagður til hinstu hvílu. Þar voru fyrir faðir hans og móðir, þau Ólafur V Noregskonungur og Märtha krónprinsessa, og amma hans og afi, þau Hákon VII Noregskonungur og Maud drottning.

Athöfnin í kastalakirkjunni var aðeins fyrir nánustu fjölskyldu Haraldar og ekki var sjónvarpað frá henni.

Að henni lokinni ók konungsfjölskyldan til konungshallarinnar. Þar heilsaði hún Norðmönnum af svölum hallarinnar, áður en erfisdrykkja hófst. Þar er búist við um 1.500 gestum.

Við þökkum fyrir samfylgdina í dag og segjum þessari fréttavakt lokið.

Hákon VIII Noregskonungur og Mette Marit drottning stigu út á svalir konungshallarinnar rétt í þessu. Þau veifuðu til fólksins sem komið hafði saman við höllina undir dynjandi lófataki.

Skömmu síðar bættust Ingiríður Alexandra krónprinsessa og Sverrir Magnús prins við og að lokum steig Sonja drottning, ekkja Haraldar V Noregskonungs, út á svalir til að heilsa upp á mannfjöldann.

Það styttist í að konungsfjölskyldan komi út á svalir konungshallarinnar til að heilsa upp á fólk.

Í útsendingu NRK mátti sjá fólk hlaupa í átt að höllinni til þess að koma sér sem best fyrir.

Eftir að fjölskylduathöfninni í Akershus-kastala var lokið lauk sömuleiðis þjóðarsorg í Noregi. Fánar sem höfðu verið dregnir í hálfa stöng voru því dregnir að húni að nýju eftir athöfnina.

Konungsfjölskyldan er nú á leið aftur til konungshallarinnar þar sem erfisdrykkjan er haldin. Fjölskylduathöfn í kastalakirkjunni er lokið. Fjölmiðlar sýndu ekki frá henni.

Eftir að athöfninni lauk mátti heyra tvöfalda fallbyssukveðju frá kastalanum. Þá var tveimur lotum af 21 fallbyssuskoti hleypt af.

Nú verða vaktaskipti hér á fréttavaktinni. Grétar Þór Sigurðsson tekur við fréttaflutningi frá Osló og Birta Björnsdóttir þakkar fyrir sig í dag.

Norska ríkissjónvarpið hafa birt afsökunarbeiðni vegna mistaka sem áttu sér stað við textun á ræðu biskupsins Olav Fykse Tveit við útförina.

Biskupinn sagði að hægt væri að sigrast á erfiðleikum og mótlæti með norsku orðunum: „Noget ondt kan rettes op igen, der findes nye, blanke ark.“

Textinn sem fylgdi með á skjánum hjá norska sjónvarpinu var hins vegar:

„Nord-Korea vondt kan rettast opp att, det finst nye, blanke ark.“

Biskupinn minntist hins vegar hvergi á Norður Kóreu í guðsþjónustunni og NRK báðust afsökunar á mistökunum.

Hér má lesa umfjöllun Nettavisen um málið.

Nú eru fánar dregnir að húni fyrir utan Akerhus kirkjuna og annars staðar í landinu sömuleiðis. Þeir hafa venju samkvæmt verið dregnir í hálfa stöng í allan dag, og reyndar alveg síðan Haraldur lést, 28. ágúst.

Þetta er gert til að hylla nýjan konung og markar formleg endalok útfarar Haraldar Noregskonungs.

Næst sjáum við svo konungsfjölskylduna yfirgefa Akerhus kastalakirkjuna og færa sig yfir í konungshöllina þar sem erfidrykkja fer fram.

Nú er kista Haraldar komin til kastalakirkjunnar í Akerhus þar sem Haraldur mun hvíla í grafhýsi hjá foreldrum sínum. Þessi hluti útfararinnar er ekki fyrir opnum tjöldum eða í beinni útsendingu. Eins og sjá í spilaranum hér að ofan sýnir norska ríkisútvarpið, NRK, nú svipmyndir frá Osló þar sem margir hafa lagt blóm til að minnast Haraldar.

Eftir athöfnina í Akerhus verður gestum boðið til erfidrykkju í konungshöllinni. Þá kemur norska konungsfjölskyldan út á svalir hallarinnar og veifar til mannfjöldans.

Á eftir kistu Haraldar Noregskonungs gengu þrír konungar saman og fylgdu kollega sínum. Það eru þeir Karl Gústaf Svíakonungur, Hákon Noregskonungur og Friðrik konungur í Danmörku.

Grétar Þór Sigurðsson, okkar maður í Osló, var í miðborginni í dag þegar Haraldur konungur var jarðsunginn.

Eins og lýst hefur verið hér ríkir þögn og stilling í Osló á útfarardegi Haraldar. Norska ríkisútvarpið segir frá því að mannfjöldinn hafi hins vegar klappað þegar forseti Úkraínu steig út úr dómkirkjunni.

Þegar Haraldur lést gerði Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir smá samantekt um konunginn nýja sem sjá má hér að neðan.

Um leið og Haraldur lést varð sonur hans, Hákon, konungur í Noregi. Hann er 53 ára og mikill útivista- og skíðamaður og umhugað um náttúrvernd og mannréttindi.

Hann er giftur Mette Marit sem nú er drottning í Noregi. Hún er ekki af konungakyni og var einstæð móðir þegar samband þeirra Hákonar hófst, eftir tónlistarhátíð í Noregi árið 1999. Hún átt stormasama fortíð að baki, sem olli talsverðu fjaðrafoki þegar sambandið komst í hámæli.

Ekki hefur fjaðrafokið minnkað undanfarin misseri, bæði þegar upp komst um samskipti drottningarinnar við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Þá hefur sonur hennar, Marius, sömuleiðis verið undir kastljósi fjölmiðla eftir að hafa gerst sekur og hlotið dóma fyrir margs konar afbrot, meðal annars kynferðis- og ofbeldisbrot.

Þau Hákon og Mette Marit eiga saman tvö börn Ingiríði Alexöndru ríkisarfa og Sverri Magnús prins, fædd 2004 og 2005.

Hákon valdi sér sömu kjörorð og faðir hans í embætti; Noregi allt.

Markús Þórhallsson tók saman umfjöllun um konunginn nýja.

Kistan flutt á fallbyssuvagni til kastalakirkjunnar í Akerhus. Sá hluti útfararinnar er ekki opinber og þangað mæta færri en voru í dómkirkjunni.

Þangað mæta æðstu embættismenn Noregs, auk norsku konungsfjölskyldunnnar. Þangað koma einnig fulltrúar dönsku og sænsku konungsfjölskyldnanna og forsetar Íslands og Finnlands.

Athöfninni í kirkjunni er að ljúka. Nú verður kista Noregskonungs borin út úr dómkirkjunni. Kista konungs verður flutt yfir í Akerhus kastalakirkjuna þar sem hann verður lagður til hinstu hvílu. Í kirkjunni er grafhýsi þar sem foreldrar Haraldar og amma hans og afi hvíla. Þar kemur Haraldur sömuleiðis til með að hvíla. Ekki verður sýnt frá þessum hluta athafnarinnar í sjónvarpi en við stöndum vaktina áfram hér á vefnum.

Biskupin Olav Fykse Tveit segir að gagnkvæm ást Haraldar á þjóð sinni deyji ekki með honum, heldur lifi áfram í hjörtum Norðmanna.

Þá fer biskupinn með Faðir vorið og svo er komið að moldun.

Norðmenn fjölmenna út á götur höfuðborgarinnar, fylgjast með útsendingunni og syrgja Harald Noregskonung.

Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar las ljóð eftir heilagan Frans frá Assisi. Haraldur var guðfaðir Vikoríu.

Sem fyrr segir sækja íslensku forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason útför Haraldar fyrir hönd Íslands. Saga samskipta Íslands og Noregs er auðvitað löng og Haraldur viðhélt góðu sambandi við íslenska ráðamenn.

Hann heimsótti Ísland sem krónprins 1967 og kom í opinbera heimsókn 1992 í forsetatíð Vigdísar Finnbogadóttur. Haraldur átti stuttan fund með Ólafi Ragnari Grímssyni á leið sinni til Bandaríkjanna 2015.

Hann tók einnig á móti íslenskum ráðamönnum, þar á meðal Guðna Th. Jóhannessyni forseta og Elízu Reid konu hans í opinberri heimsókn 2017. Halla Tómasdóttir hefur tvisvar farið í opinbera heimsókn til Noregs.

Haraldur Noregskonungur kom víða við á langri ævi. Hann stundaði nám við Háskólann í Osló, norska herskólann og Balliol-háskóla í Oxford á Englandi þar sem hann nam sagnfræði, hagfræði og stjórnmálafræði. Hann var mikill íþróttamaður og keppti fyrir Noregs hönd í siglingum á Ólympíuleikunum 1964, 1968 og 1972. Haraldur varð heimsmeistari í siglingum 1987.

Færri komust að en vildu í dómkirkjunni í Osló. En í miðborginni fylgjast margir með útförinni sem er sýnd á nokkrum risaskjám.

Það er ekki bara forsætisráðherra Noregs sem minnist Noregskonungs með hlýju. Þórhallur Guðmundsson hefur búið í Noregi í 50 ár. Hann er að fylgjast með úrförinni og Grétar Þór Sigurðsson ræddi við Þórhall í morgun.

„Við erum búin að bjóða til okkar 5 nágrönnum sem ætlum að horfa á sjónvarpið og fylgjast með, þetta verður stór viðburður og það er gott að geta verið saman með vinum á svona stundu,“ segir Þórhallur og lýsir svo andrúmsloftinu í Noregi undanfarna daga.

„Það hefur verið fullt af hlýju, kærleika, virðingu og fólk talar sérstaklega um þessa sterku þögn sem skapast þegar fólk er að leggja blóm á veggina eða túnin fyrir utan höllina og það skapast alveg ofsalega góð, gott viðmót og ró og þakklæti.“

Hvernig var sambandi þjóðarinnar við Harald háttað?

„Mín upplifun eftir að hafa búið hér í 50 ár er að ég hef sjaldan upplifað Norðmenn jafn samtaka eins og núna, í að sýna kónginum virðingu hlýju og þakklæti fyrir það að hann hefur staðið upp fyrir þau og byggt upp sterka þjóðartilfinningu þar sem allir eru með,“ segir Þórhallur.

Fulltrúar ólíkra trúar- og lífsskoðunarfélaga í Noregi tendra nú kerti í kirkjunni til minningar um Harald Noregskonung.

Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs segir að þakklæti sé sér efst í huga, þakklæti fyrir embættistíð Haraldar Noregskonungs. Hann hafi glaðst með þjóð sinni þegar það átti við með blik í auga, en einnig tekið þátt í sorg þjóðarinnar, til dæmis eftir hryðjuverkin í Útey.

Masud Gharahkhani, forseti norska stórþingsins, minnist nú konungsins. Í kjölfarið talar forsætisráðherra landsins, Jonas Gahr Støre.

Einnar mínútu þögn er nú lokið og athöfnin hefst. Það má fylgjast með henni í spilaranum hér að ofan.

Norska konungshöllin hefur gefið út dagskrána í athöfninni sem fer að hefjast í dómkirkjunni í Osló. Hana er hægt að finna hér og hafa við höndina næsta klukkutímann:
Dagskrá í dómkirkjunni

Hákon og Mette Marit voru gefin saman í dómkirkjunni árið 2001. Kirkjan varð sömleiðis táknmynd samstöðu og vonar í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Osló og Útey 2010, segir Anna Lilja Þórisdóttir sem lýsir útsendingunni hér að ofan.

Lögreglan í Osló áætlar að um 53 þúsund manns hafi staðið meðfram Karls Jóhannsgötu á meðan kista Haraldar var borin þar hjá og að um 180 þúsund hafi verið í miðborg Osló.

Boðsgestir eru flestir komnir í dómkirkjuna í Osló þar sem útför Haraldar hefst klukkan 11. Athöfnin hefst á einnar mínútu þögn um landið allt þar sem Norðmenn þagna og minnast konungsins.

Á kortinu má sjá leiðina sem kista Haraldar fer í dag. Fyrst frá konungshöllinni í dómkirkjuna þar sem athöfn hefst innan skamms. Þaðan verður kista konungs flutt yfir í Akerhus kastalakirkjuna þar sem hann verður lagður til hinstu hvílu. Í kirkjunni er grafhýsi þar sem foreldrar Haraldar og amma hans og afi hvíla. Þar kemur Haraldur sömuleiðis til með að hvíla. Ekki verður sýnt frá þessum hluta athafnarinnar.

Marius Borg Høiby, sonur Mette Marit drottningar, gengur ekki með fjölskyldu sinni líkfylgdina. Hann er mættur í dómkirkjuna.

Íslenski fáninn var dreginn í hálfa stöng við sendiráð Íslands í Ósló í morgun.

Þau Hákon og Mette Marit eiga tvö börn saman, Ingiríði Alexöndru, sem varð krónprinsessa við andlát afa síns, og Sverri Magnús. Þau fylgja afa sínum í dag.

Þegar Hákon og Mette Marit kynntust átti hún fyrir soninn Marius Borg Høiby. Hann fær að fylgja Haraldi í dag en gengur ekki með fjölskyldu sinni. Hann afplánar nú fangelsisdóm fyrir nauðgun og önnur ofbeldisbrot.

Nokkuð hefur gustað um norsku konungsfjölskylduna undanfarið sem virðist hafa dregið úr fylgi almennings við konungdæmið á mjög skömmum tíma. Sögulega séð hafa átta af hverjum tíu Norðmönnum stutt það en fylgið féll niður í sextíu af hundraði í könnun Norstat fyrir NRK fyrr á þessu ári.

Haraldur konungur sjálfur fékk hins vegar einkunnina 9,2, Sonja drottning 8,6 og Hákon ríkisarfi 7,9. Hins vegar hlaut Mette Marit eiginkona hans einkunnina 3,7, helmingi lægri en hún fékk áður en ljóstrað var upp um tengsl hennar og fundi með bandaríska kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein.

Sonju drottningu, ekkju Haraldar, er ekið í bíl á eftir kistunni. Árið 1968 gekk Haraldur að eiga jafnöldru sína, Sonju Haraldsen. Ráðahagurinn vakti talsvert uppnám enda Sonja af alþýðuættum. Ólafi konungi, stjórnmálamönnum og mörgum Norðmönnum þótti það hin mesta ósvinna að tilvonandi konungur veldi slíka konu. Þau héldu sambandinu leyndu lengi vel.

Haraldur stóð fast við sinn keip og almenningsálitið snerist fljótt þeim Sonju í vil eftir níu ára bið eftir formlegu hjúskaparleyfi. Konungshjónin hafa verið afskaplega vinsæl og notið mikillar virðingar.

Í bílnum er líka Mette Marit, ný drottning Noregs, eiginkona Hákons. Hún hefur glímt við heilsubrest og undirgekkst lungnaígræðslu fyrir skömmu.

Í líkfylgdinni má sjá mörg kunnugleg andlit. Vilhjálmur krónprins í Bretlandi, Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og Alexander Stubb, forseti Finnlands eru meðal þeirra sem ganga svartklædd í kjölfar kistu Haraldar.

Hér má sjá nokkrar myndir frá líkfylgdinni sem lagði af stað klukkan 10.

„Ungir sem aldnir hafa klifrað í trjám og í höggmyndum til að sjá betur yfir fólksfjöldan. Fólk hefur einnig gripið til þess ráðs að nota stiga,“ segir Grétar Þór Sigurðsson í Osló.

Fallbyssuskot heyrast undir tónlistinni sem leikin er undir líkfylgdinni.

„Ef hægt er að tala um að kliður hafi verið í fólkinu sem hefur komið saman við Karls Jóhanns-götu endilanga þá sló svo sannarlega þögn á hópinn um leið og líkfylgdin hófst,“ lýsir Grétar Þór Sigurðsson í Osló.

Veðrið í Osló skartar sínu fegursta þegar þjóðin kveður konungs sinn. Börn Hákons Noregskonungs fylgja afa sínum sömuleiðis.

Drottningunum tveimur, Sonju ekkju Haraldar, og Mette Marit, eiginkonu Hákons, er ekið í bíl eftir kistunni.

Kistan er hjúpuð norska konungsfánanum upplýsir Anna Lilja Þórisdóttir, sem lýsir útförinni í spilaranum hér að ofan.

Eins og sjá má í spilaranum hér að ofan hefst dagskráin á réttum tíma. Á slaginu klukkan 10 var gengið af stað með kistu konungs á vagni. Hákon Noregskonungur er meðal þeirra sem gengur með kistu föður síns.

Eitt af síðustu embættisverkum Haraldar var einmitt í dómkirkjunni þar sem útför hans fer senn fram. Þar tók hann þátt í minningarathöfn um þau sem létust í hryðjuverkaárásunum í Osló og Útey fyrir 15 árum. Minningarathöfnin var 22.júlí síðastliðinn.

Senn líður að því að Haraldur yfirgefi norsku konungshöllina í síðasta sinn. Kista hans hefur staðið þar frá 1.september. Líkfylgdin verður eftir Karls Jóhannsgötu og er um 1,2 kílómetra löng.

Við sýnum beint frá útför Haraldar Noregskonungs í sjónvarpi frá klukkan 9.50. Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður er tilbúin að lýsa því sem fyrir augu ber. Anna Lilja þekkir vel til sögu kóngafólks um alla Evrópu svo lýsingin verður í öruggum höndum.

Bæði er hægt að horfa á útsendinguna í sjónvarpi og í spilaranum hér að ofan.

En það eru ekki allir svartklæddir í tilefni dagsins. Gefum Grétari Þór orðið:

Norski þjóðbúningurinn sker sig úr annars dökk-eða svartklæddu mannhafinu við Karls Jóhanns-götu.

Ellen Margrethe Ulving er ein þeirra sem klæddi sig upp við þetta tilefni. Hún segir norska búninginn, eða bunad, viðeigandi við öll formleg tilefni þar á meðal jarðarfarir. „Ekki gat ég mætt í gallabuxum,“ segir hún, spurð að því hvers vegna hún valdi þjóðbúninginn í dag.

En það eru ekki bara þjóðhöfðingjar sem mæta til leiks í dag. Á gestalistanum er einnig að finna nafn Marthe Kristine Paulsen, 36 ára konu frá Kviteseid. Hún var 13 ára þegar hún hitti Harald Noregskonung í fyrsta og eina skiptið. Þá hafði hún, ásamt öðrum börnum, tjáð sig um ofbeldi sem þau höfðu orðið fyrir á heimilum sínum. Haraldur bauð börnunum í heimsókn í höllina og fékk að heyra sögu Paulsen. Í kjölfarið sagði hann að ofbeldið væri ekki henni að kenna, orð sem Paulsen sagði hafa bjargað sér.

Hún sendi samúðarkveðju við andlát Haraldar og þakkaði honum fyrir þessu hughreystandi orð. Henni þótti leitt að hafa aldrei getað þakkað honum í eigin persónu, en sagðist í viðtali við NRK, norska ríkissjónvarpið, að hún hefði bæði verið hissa og glöð þegar hún fékk boðskort í útförina.

Hér má lesa umfjöllun NRK um málið.

Prúðbúnir þjóðarleiðtogar eru mættir til Osló til að fylgja Haraldi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Og hvað vitum við þá um hverjir mæta og hverjir ekki?

Á sunnudag boðað Margrét Danadrottning forföll af heilsufarsástæðum en Friðrik Danakonungur og Mary drottning mæta.

Sænska konungsfjölskyldan mætir öll og spænsku konungshjónin sömuleiðis. Hollensku og belgísku konungshjónin mæta sömuleiðis.

Vilhjálmur krónpris í Bretlandi mætir og Anna systir Karls konungs sömuleiðis. Hefðin býður að konungur eða drottning í Bretlandi mæti jafnan ekki á viðburði sem þessa en sendi sína næstráðendur í sinn stað.

Þannig mætti Karl, þá krónprins, til útfarar Ólafs Noregskonungs, í stað móður sinnar.

Það er í nógu að snúast hjá ráðamönnum heims. Donald Trump mætir til að mynda ekki. Landsfundur Repúblikanaflokksins verður haldinn í Texas í vikunni og Trump tekur henn fram yfir að þessu sinni.

Þegar Ólafur Noregskonungur var borinn til grafar 1991 mætti Dan Quayle, varaforseti George H.W. Bush, fyrir hönd bandarískra stjórnvalda.

Forseti Finnlands, Alexander Stubb, hefur boðað komu sína og sem og forseti Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier.

Sætafjöldi er takmarkaður og um tíma leit ekki út fyrir að allir þingmenn á norska þinginu fengju boð. Það fengu þeir þó á endanum. Fyrrum forsætsráðherrum er einnig boðið, þeirra á meðal Gro Harlem Brundtland og Ernu Solberg.

Mikil öryggisgæsla verður í höfuðborginni Osló. Þúsundir lögreglu- og hermanna, norskra, danskra og sænskra, verða til að gæta öryggis enda búist við að tugþúsundir safnist saman í miðborginni.

Yfirvöld í Noregi ákváðu í öryggisskyni að birta ekki lista yfir þá þjóðarleiðtoga sem sækja útförina en öllum löndum sem eiga sendifulltrúa í Noregi er boðið að senda gest til athafnarinnar og að það sé hverju þeirra í sjálfvald sett að upplýsa hvaða ráðamenn verði viðstaddir.

NRK tók saman frétt um hverjir mæta.

Danska ríkisútvarpið greinir frá því að fjölmargir Norðmenn hafi tekið sér frí frá skóla og vinnu í dag til að fylgjast með útför Haraldar.

Grétar Þór segir meirihluta viðstaddra á götum úti klæðast svörtu í tilefni dagsins.

„ Þrátt fyrir mikinn mannfjölda er þó eitt sérkenni á andrúmsloftinu í miðborginni og það er þögnin,“ segir Grétar Þór Sigurðsson, fréttamaður, sem er í miðborg Osló. Hér má sjá nokkrar myndir frá morgninum.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, verða við útför Haraldar Noregskonungs. Halla segir Harald fimmta Noregskonung hafa verið góðan þjóðhöfðingja sem Norðmönnum þótti afar vænt um. Í viðtali við fréttastofu daginn sem Haraldur lést, 28.ágúst, sagði Halla meðal annars:

„Það er alveg ljóst að norska þjóðin er í sorg í dag og við finnum til með frændum okkar Norðmönnum á svona degi. Þarna er fallinn frá afskaplega góður þjóðhöfðingi sem þjóðinni þótti vænt um. Ég skynjaði líka að okkur utan landamæranna þótti sérstaklega vænt um hann og sannarlega á það við um mig. Þetta var einstaklega vitur, hlýr maður með góða kímnigáfu sem sinnti þjóð sinni vel og var elskaður af henni,“ segir Halla í viðtali við fréttastofu.

Komið hafi á óvart hve stutt var í kímnigáfuna hjá Haraldi.

„Það var svo fallegt í hans fari. Við vorum að ræða flókin mál, flókna stöðu í heiminum, áskoranir, en einhvern veginn var stutt í brosið og hláturinn og mennskuna og ég fann það svo hvað hans einlæga ást á sinni þjóð var honum alltaf efst í huga. Ég fann líka fyrir þessari ást í garð Íslendinga.“

„ Fólk er tekið að streyma í miðborgina og nú þegar eru þúsundir við Karls Jóhanns-götu. Kistu konungs verður ekið sem leið liggur um götuna á eftir, frá konunglegu kapellunni í konungshöllinni yfir í dómkirkju Óslóar,“ segir Grétar Þór Sigurðsson í Osló.

Fréttamaður okkar, Grétar Þór Sigurðsson, er búsettur í Osló. Eins og flestir íbúar borgarinnar finnur hann fyrir viðbúnaðinum í borginni. Gefum Grétari orðið:
„ Öryggisgæsla er eins og gefur að skilja mikil í miðborg Óslóar. Stór hluti hennar er lokaður fyrir bílaumferð. Lögregla hefur sett upp nokkur hlið inn í miðborgina þar sem leitað er í töskum gangandi vegfaranda en þúsundir lögreglumanna standa vaktina í dag.“

Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman sjónvarpsfrétt með svipmyndum frá ævi Haraldar þegar hann lést 28.ágúst. Fréttina má sjá hér að ofan.

Haraldur varð konungur í Noregi 1991 þegar faðir hans, Ólafur V, lést. Hann var því konungur í rúm 35 ár og fylgdi þjóð sinni gegnum þykkt og þunnt.

Haraldur fæddist 21. febrúar 1937. Hann var fyrsti ríkisarfinn sem fæddist í Noregi í um það bil 600 ár, á Skaugum í Asker. Móðir Haraldar, Märtha krónprinsessa, flúði með hann og systur hans til Svíþjóðar og loks til Bandaríkjanna þegar Þjóðverjar réðust inn í Noreg.

Faðir Haraldar og Hákon VII., afi hans, bjuggu í Lundúnum þar til heimsstyrjöldinni lauk. Fjölskyldan sneri aftur til Noregs í júní 1945, við mikinn fögnuð landsmanna. Við andlát Hákons VII. varð Haraldur ríkisarfi þegar Ólafur tók við krúnunni.

Haraldur þótti alúðlegur og hlýr konungur ef marka má fréttir af honum, með ríka kímnigáfu og framsækinn meðal annars á sviði mannréttindamála. Hann vakti heimsathygli með ræðu sem hann hélt fyrir tíu árum þar sem hann talaði hástöfum meðal annars fyrir réttindum hinsegin fólks og innflytjenda.

Hann er sagður hafa litið á það sem sitt hlutverk að hughreysta þjóðina þegar á móti blés, ekki síst eftir hryðjuverkin í Osló og Útey 2011. Haraldur heimsótti allar byggðir Noregs í valdatíð sinni og fór í fjölda heimsókna erlendis.

Markús Þórhallsson skrifaði um æviágrip Haraldar þegar hann féll frá. Það má lesa hér að neðan.

1900 hermenn gengu fylktu liði eftir Karl Jóhannsgötu í Osló í morgun að viðstöddu fjölmenni sem fylgdist með á götum úti. Í myndskeiðinu hér að ofan má sjá brot frá morgninum.

Formleg dagskrá er þegar hafin. Þúsundir hermanna ganga fylktu liði eftir götum Osló. Hér eru svo helstu tímasetningar:

Kl. 10 - Kista Haraldar verður flutt frá konungshöllinni og yfir í dómkirkjuna í Osló. Gestir koma sér fyrir í dómkirkjunni.

Kl. 10.42 - Kistan verður borin inn í dómkirkjuna.

Kl. 11.00 - Athöfnin hefst með einnar mínútu þögn um landið allt.

Kl. 12.00 - Athöfninni í dómkirkjunni lýkur. Kista konungs verður flutt yfir í Akerhus kastalakirkjuna þar sem hann verður lagður til hinstu hvílu. Í kirkjunni er grafhýsi þar sem foreldrar Haraldar og amma hans og afi hvíla. Þar kemur Haraldur sömuleiðis til með að hvíla. Ekki verður sýnt frá þessum hluta athafnarinnar.

Kl. 13.20 - Fánar dregnir að húni sem marka endalok útfararinnar.

Kl. 13.25 - Konungsfjölskyldan yfirgefur Akerhus kastalakirkjuna.

Kl. 13.35 - Konungsfjölskyldan mæti í konungshöllina.

Kl. 14.45 - Konungsfjölskyldan veifar til mannfjöldans af svölum konungshallarinnar.

Í spilaranum hér að ofan má fylgjast með útsendingu NRK, norska ríkissjónvarpsins, í allan dag. Við hefjum svo útsendingu í sjónvarpi sömuleiðis kl. 9.50 og fram yfir hádegið. Anna Lilja Þórisdóttir lýsir herlegheitunum.

Haraldur Noregskonungur verður lagður til hinstu hvílu í Osló í dag. Mikll viðbúnaður er í höfuðborg Noregs. Ég heiti Birta Björnsdóttir og ætla að lýsa hér því sem fyrir augu ber í Noregi í dag. Fjöldi fyrirmenna er væntanlegur í útförina og Norðmönnum þótti vænt um konunginn sinn.

#dregnir #fánar #liðinn #tími #þjóðarsorgar


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-09-09-timi-thjodarsorgar-lidinn-og-fanar-dregnir-aftur-ad-huni-eftir-utfor-haraldar-486490

📰 Aðrar fréttir

Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum - Vísir
Leanne Gregory var að snorkla ásamt fjölskyldu sinni við eyjuna Bimini á þriðjudag þegar drengirnir voru gripnir af straumnum. Báðum börnunum var bjar...
Brynjar gerir grín að Viðreisn og líkir því við sambúðina við Soffíu
📅 24.10.2026 👁️ 1
Brynjar gerir grín að Viðreisn og líkir því við sambúðina við Soffíu
Brynjar Níelsson grínast með að hafa samið við Soffíu um að flytja af heimilinu án þess að slíta hjónabandinu. Þvotturinn og sunnudagsmaturinn fá þó a...
Brenna viðarperlur til að kynda „Klakahöllina“
📅 24.10.2026 👁️ 1
Brenna viðarperlur til að kynda „Klakahöllina“
Skólatorfan á Reyðarfirði, knattspyrnuhöll, íþróttahús og skólamannvirki verða kynt með brennslu á viðarperlum. Framkvæmdir eru langt komnar við nýja ...
Hvar er íslenska einhverfu félagið/samtökin?
📅 24.10.2026 👁️ 2
Hvar er íslenska einhverfu félagið/samtökin?
Hvar er íslenska einhverfu félagið/samtökin? Fréttin24. október 2026Helgi Örn Viggósson, InnlentLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar: Heim...
Drauga- og skrímslaganga í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
📅 24.10.2026 👁️ 1
Drauga- og skrímslaganga í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Löng röð myndaðist í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík í dag, fyrsta dag vetrar.Þar voru ýmsar kynjaverur á ferðinni. Drauga- og skrímslagang...
Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst - Vísir
Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglu og saksóknara í Berchtesgaden síðdegis í dag en Guardian fjallar um málið. Maðurinn var handtekinn skömmu ef...
Níu látnir eftir árás á kristna kirkju í Jórdaníu – konungurinn boðar hörð viðbrögð
📅 24.10.2026 👁️ 2
Níu látnir eftir árás á kristna kirkju í Jórdaníu – konungurinn boðar hörð viðbrögð
Níu látnir eftir árás á kristna kirkju í Jórdaníu – konungurinn boðar hörð viðbrögð Fréttin24. október 2026ErlentLeave a Comment Mannfall eftir mannsk...
Úkraína, Rússland og Bandaríkin sammála um friðarviðræður í Abú Dabí
📅 24.10.2026 👁️ 2
Úkraína, Rússland og Bandaríkin sammála um friðarviðræður í Abú Dabí
Úkraína, Rússland og Bandaríkin sammála um friðarviðræður í Abú Dabí Fréttin24. október 2026ErlentLeave a Comment Úkraína, Rússland og Bandaríkin hafa...
Yfir 400 þúsund mótmæla í Frakklandi – nærri þúsund handtekin
📅 24.10.2026 👁️ 2
Yfir 400 þúsund mótmæla í Frakklandi – nærri þúsund handtekin
Yfir 400 þúsund mótmæla í Frakklandi – nærri þúsund handtekin Fréttin24. október 2026ErlentLeave a Comment Mikil mótmælaalda gekk yfir Frakkland lauga...
Gagnrýnisraddir á breytingu á Loftbrú skiljanlegar
📅 24.10.2026 👁️ 2
Gagnrýnisraddir á breytingu á Loftbrú skiljanlegar
María Rut Kristinsdóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis og þingmaður Viðreisnar, segir gagnrýnisraddir um breytingu á niðurgreiðslu ...
Efling íhugar úrsögn úr ASÍ
📅 24.10.2026 👁️ 2
Efling íhugar úrsögn úr ASÍ
Stjórn Eflingar hefur samþykkt að skoða hvort félagið eigi að segja sig úr Alþýðusambandi Íslands. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir a...
Fireworks and tear gas as protesters and riot police clash in Paris
📅 24.10.2026 👁️ 2
Fireworks and tear gas as protesters and riot police clash in Paris
Europe correspondent Nick Beake reports from Paris where mostly peaceful protests turned into unrest after nightfall.
Glefsaði í veg­far­enda við mat­vöru­verslun - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Glefsaði í veg­far­enda við mat­vöru­verslun - Vísir
Lögreglu barst tilkynning um að hundur hefði glefsað í vegfaranda framan við matvöruverslun í suðurhluta höfuðborgarsvæðisins. Hann slapp við meiðsli ...
Glefsaði í veg­faranda við mat­vöru­verslun - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Glefsaði í veg­faranda við mat­vöru­verslun - Vísir
Lögreglu barst tilkynning um að hundur hefði glefsað í vegfaranda framan við matvöruverslun í suðurhluta höfuðborgarsvæðisins. Hann slapp við meiðsli ...
Palestínumenn gætu ráðið örlögum Netanjahús
📅 24.10.2026 👁️ 4
Palestínumenn gætu ráðið örlögum Netanjahús
Palestínumenn gætu ráðið örlögum Netanjahús Tveir listar með arab­ískan meiri­hluta geta skipt sköpum í að fella rík­is­stjórn Benja­míns Net­anja­hús...
Ekki hægt að mæla ávinning bókasafna í útlánstölum og gestafjölda
📅 24.10.2026 👁️ 4
Ekki hægt að mæla ávinning bókasafna í útlánstölum og gestafjölda
Formaður félags bókasafnsfræðinga segir samfélagslegan ávinning bókasafna meiri en svo að hægt sé að mæla hann í útlánstölum og gestafjölda. Hún sjái ...
Þúsund hand­teknir og tára­gasið hvergi sparað - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Þúsund hand­teknir og tára­gasið hvergi sparað - Vísir
Í París telur lögregla 110 þúsund hafa tekið þátt en CGT segir þá hafa verið um 250 þúsund. Opinbera talan fyrir landið allt er lægri en um síðustu he...
Mótmæli víða í Evrópu: Minnst þúsund handteknir í Frakklandi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Mótmæli víða í Evrópu: Minnst þúsund handteknir í Frakklandi
Meira en 800 þúsund mótmæltu í Frakklandi í dag að sögn almenna verkalýðssambandsins CGT. Innviðaráðherra Frakklands segir fjölda mótmælenda nær 400 þ...
Jólageitin risin - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Jólageitin risin - Vísir
Guðný Camilla Aradóttir markaðsstjóri Ikea segir starfsfólki þykja vænt um geitina sem eigi huggulega jólastund þegar geitin er reist. Það hefur ekki ...
ADHD-ið geri Jón Gnarr full­kominn fyrir opið sam­band - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
ADHD-ið geri Jón Gnarr full­kominn fyrir opið sam­band - Vísir
Þetta sagði Sigga Dögg Arnardóttir, betur þekkt sem kynfræðingurinn knái Sigga Dögg, í nýjasta þætti Hvað er að frétta? þar sem hún gaf Jóni Gnarr og ...
Palestinian families displaced as Israeli forces demolish Hebron homes, local officials say
📅 24.10.2026 👁️ 4
Palestinian families displaced as Israeli forces demolish Hebron homes, local officials say
The crackdown follows the killing of two Israeli soldiers by two Palestinian gunmen on Friday - and comes just days ahead of Israel's election.
Palestinian families displaced as Israeli forces demolish Hebron home
📅 24.10.2026 👁️ 2
Palestinian families displaced as Israeli forces demolish Hebron home
The crackdown follows the killing of two Israeli soldiers by two Palestinian gunmen on Friday - and comes just days ahead of Israel's election.
Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
Í dýrtíð eins og nú er er ekki sjálfsagt að geta lagt fyrir í hverjum mánuði. Annað hvort inn á sparireikning eða borgað inn á lán. Í umræðum á samfél...
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
📅 24.10.2026 👁️ 4
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
Katharine Viviano, 50 ára grunnskólakennari í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum, hefur verið ákærð fyrir ölvun á almannafæri eftir undarlegt atvik í h...
Segir viðmót starfsmanns hafa breyst þegar hún sagðist vera gyðingur
📅 24.10.2026 👁️ 4
Segir viðmót starfsmanns hafa breyst þegar hún sagðist vera gyðingur
Ísraelsk-bandaríski rithöfundurinn Shoshanna Keats Jaskoll segir viðmót starfsmanns í öryggisleit á flugvellinum hafa breyst þegar hún sagðist vera gy...
Segir skorta rök fyrir því að lögregluembættin verði þrjú
📅 24.10.2026 👁️ 4
Segir skorta rök fyrir því að lögregluembættin verði þrjú
Yfirlögregluþjónar og starfsmenn lögreglu á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum lýsa áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Alls...
Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni - Vísir
Keppnin var á vegum Krónunnar og var metþátttaka í ár. Edda sem bar sigur úr býtum var í öðru sæti fyrir tveimur árum og hefur því ákveðna reynslu á b...
Hefur ekki átt í sambandi við föður sinn til að vernda börnin
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hefur ekki átt í sambandi við föður sinn til að vernda börnin
Meghan Markle hefur ekki leyft föður sínum að eiga í sambandi við börnin sín vegna ásakana á hendur honum. Fréttir bárust af því í gær að myndefni sem...
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
„Innanlandsflugið er lífæð landsbyggðar og tryggir aðgengi að nauðsynlegri þjónustu við fólk. Flugið er öryggismál og jafnréttismál til að jafna aðstö...
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
📅 24.10.2026 👁️ 4
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
Í myndbandi sem birt var af hópnum The Young Turks segir að þingmaðurinn Lindsey Graham hafi keypt vændi af karlmönnum. Graham lést skyndilega í sumar...
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
Mótmælaaldan sem hefur farið vaxandi í Frakklandi á síðustu vikum náði hámarki um síðustu helgi. Fjöldi fólks var handtekinn og voru gerðar miklar ske...
UK braces for worst of Storm Boelo as amber warnings due to come into force
📅 24.10.2026 👁️ 4
UK braces for worst of Storm Boelo as amber warnings due to come into force
Scotland, parts of northern England and Northern Ireland are forecast to be hit with the strongest winds from the country's second storm in as many da...
UK weather: Amber warnings kick in as Storm Boelo brings 70mph wind gusts
📅 24.10.2026 👁️ 2
UK weather: Amber warnings kick in as Storm Boelo brings 70mph wind gusts
Scotland, parts of northern England and Northern Ireland are forecast to be hit with the strongest winds from the country's second storm in as many da...
UK weather: Amber warnings kick in as Storm Boelo to bring 80mph wind gusts
📅 24.10.2026 👁️ 1
UK weather: Amber warnings kick in as Storm Boelo to bring 80mph wind gusts
Scotland, parts of northern England and Northern Ireland are forecast to be hit with the strongest winds from the country's second storm in as many da...
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
Þann 16. apríl síðastliðinn spurði Njáll Trausti Friðbersson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, Eyjólf Ármannsson samgön...
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
📅 24.10.2026 👁️ 4
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
Talsvert er rætt um gervigreind þessa dagana. Margir þeirra sem vinna með höfðinu óttast að þeir verði úreltir og ónothæfir áður en langt um líður. Vi...
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
Frekar undarlegt er það ekki? Vinsælasta skýringin er sú að í upphafi ritvélarinnar festust takkarnir ef pikkað var of hratt. Þannig að uppfinningamað...
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir að stjórnvöld verði að gera grein fyrir úrbótum varðandi neyðarvistun barna. Tvö ár eru síðan drengur í neyðar...
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
Dýrin komust raunar ekki langt. Lögregla náði að handsama hestana þegar þeir stoppuðu til að bíta gras um kílómetra frá verslunarmiðstöðinni og voru þ...
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
Aðfaranótt 14. október tóku úkraínskir hermenn eftir því að takmarkanir virtust hafa verið settar á notkun þeirra á Starshield-kerfinu sem er sérstaku...
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
Mynd Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfé
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Flokks fólksins, er ekki ánægð með fyrirhugaðar breytingar á hinni svokölluðu Loftbrú. Flokksbróðir hennar Eyjólfu...
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
Umsögnin beinist að frumvarpsdrögum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar hjá lögreglu. Frumvarpið leggur til að...
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
📅 24.10.2026 👁️ 4
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
An elderly man was resuscitated and taken to hospital after suffering a cardiac arrest at La Garita beach in Arrieta, located in the north of Lanzarot...
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
📅 24.10.2026 👁️ 3
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala Litli spít­al­inn verður opn­aður í hús­næði í eigu stofn­anda Samherja. Nýja einka­rekna sjúkra­húsið ...
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
Innviðaráðherra, tilkynnti í gær breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar sem taka gildi frá og með áramótum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurland...
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
📅 24.10.2026 👁️ 4
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
A European investment target may have strong financial results and still depend on relationships that do not appear in its accounts. Political connect...
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
Í viðtalinu fer Tolli á kostum, hann fer yfir víðan völl og stiklar á stóru varðandi sinn litríka feril. Hann hætti öllum afskiptum af tónlist eftir a...
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
📅 24.10.2026 👁️ 4
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
Þegar við skrifuðum undir EES-samninginn skuldbundum við okkur til að lögfesta forgang innleiddra laga og regla sem leiddu af honum ef þörf væri á. Hæ...
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttakona og rithöfundur, leggur til að borgarstjórn Reykjavíkur sameini tvö mál sem henni eru hjartfólgin, það er bók...