Sundlaugaverðir fá reglulega yfir sig skammir og hastarleg viðbrögð þegar þeir minna sundlaugagesti á að fylgja reglum í búningsklefum og sánum.
Friðfinnur Finnbjörnsson, baðvörður í Lágafellslaug, segir að stundum hafi jafnvel legið við slagsmálum þegar fólk er beðið um að leggja frá sér síma í klefanum eða fara eftir hreinlætisreglum.
„Það hefur komið fyrir oftar en einu sinni að menn geri sig breiða, eins og þeir séu tilbúnir að slást, þegar maður reynir að fylgja einföldum reglum,“ segir hann.
Fær ónot á móti
Greint var frá því fyrr í vikunni að sífellt fleiri karlmenn færu í nærbuxum undir sundskýlu eða stuttbuxur fyrir sund, eftir að hafa verið í þeim áður.
Þá hafa einhverjir gagnrýnt að starfsfólk sé ekki nægilega sýnilegt í búningsklefum sundlauganna.
Spurður hvort starfsfólk reyni að fylgjast með því hvort gestir þvoi sér nægilega vel áður en þeir fara ofan í laugina segir Friðfinnur að það sé reynt.
„Maður reynir það, en þegar maður er búinn að reyna að framfylgja reglum tuttugu sinnum yfir daginn og í annað hvert skipti fær maður einhver ónot á móti, þá svona missir maður dampinn.“
Hann bendir á að hreinlæti gesta skipti miklu máli fyrir vatnsgæði lauganna. Klór sé notaður til að halda niðri bakteríum og öðrum óhreinindum, en ef margir sleppa því að þvo sér getur það haft áhrif á gæði vatnsins.
Mafía og okurstarfsemi
Friðfinnur segir að starfsfólk hafi ítrekað þurft að vísa gestum upp úr lauginni vegna þess að þeir væru í nærbuxum undir sundfötum. Hann rifjar upp eitt atvik þar sem ungur gestur mætti í stuttbuxum og nærbuxum undir þeim.
„Ég bauð honum að fá lánaða eða leigða sundskýlu hjá okkur. Stuttu síðar mætti móðir hans og ásakaði okkur um að vera mafía og stunda okurstarfsemi með því að neyða fólk úr stuttbuxunum sínum og láta það leigja sundföt af okkur,“ segir hann.
Að sögn Friðfinns getur reynst erfitt að framfylgja reglunum, sérstaklega yfir sumartímann þegar margir ungir starfsmenn eru við störf.
„Á sumrin eru oft 17 eða 18 ára krakkar í vinnu sem þurfa að fara og rífast við fullorðið fólk um reglur. Það er ekkert sérstaklega þægilegt hlutverk fyrir ungmenni,“ segir hann.
Skilað árangri
Friðfinnur segir að fólk hafi brugðist eins við þegar tekin var upp sú regla í sánum að gestir þurfi að sitja á handklæði. Áður var hægt að sitja ber á bekknum.
„Við vorum kallaðir fasistar og nasistar fyrir þetta,“ segir hann.
Að sögn Friðfinns hefur breytingin þó skilað árangri og ólykt sem áður gat myndast í sánunum sé horfin.
Flestir gestir taka nú tvö handklæði með sér í sund, annað til að þurrka sér og hitt til að sitja á í sánunni.
