Friedrich Merz Þýskalandskanslari segir ekkert útlit fyrir að Úkraínumenn fái flýtimeðferð í aðildarviðræðum að Evrópusambandinu en leggur til að þeim verði veittur aðgangur að fundum þess án atkvæðaréttar.
Merz lét þessi orð falla eftir fund óformlegum fundi leiðtoga Evrópusambandsins á Kýpur þar sem Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti var meðal gesta.
Úkraínumenn hafa lengi þrýst á að aðildarviðræðum verði hraðað sem hefur meðal annars tafist vegna andstöðu Ungverjalands undir forsæti Viktors Orbans. Ósigur hans í þingkosningum fyrr í apríl eykur vonir um að Úkraína geti stigið næstu skref í átt til aðildar.
Ríki sambandsins hafa ekki verið ginnkeypt fyrir hraðri inngöngu Úkraínu og Friedrich Merz sagði alla vita að slíkt væri í raun útilokað. Zelensky sagði Úkraínu ekki þarfnast einhvers konar táknrænnar aðildar að Evrópusambandinu.
Úkraína berjist á vígvellinum fyrir sameiginlegum evrópskum gildum og verðskuldi því fulla, óskoraða aðild. Úkraínumenn vilja nýta fenginn meðbyr og óttast að tímabundnar lausnir verði til þess að aðildarumsóknin sitji föst árum saman.