Áætlað er að þyrlan taki við manninum við Vík í Mýrdal eða í Skógum.
Einar Valsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, segir í samtali við fréttastofu að útkallið hafi borist um korter yfir sjö í kvöld.
Grunur er um að maðurinn sé með höfuðáverka, líklega eftir spark frá hesti.