Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, segir mjög langan lista vefsíðna og kerfa hafa verið berskjaldaðan vegna alvarlegra veikleika í PHP-forritunarmálinu.
Greint var frá því að tveir veikleikar hefðu fundist í dag. Talið er að allt að 70 prósent vefsíðna heimsins gætu verið í hættu vegna þeirra.
Öryggisgallinn hafði áhrif á margar íslenskar vefsíður. Til dæmis lá vefur Reykjavíkurborgar niðri tímabundið á meðan unnið var að uppfærslu. Það sama gilti um vefi Háskóla Íslands og truflana varð vart á vefsíðu Strætó.
„Listinn er mjög langur. Við getum sagt að þetta sé þverskurður af íslensku atvinnulífi sem er á einn eða annan hátt að keyra þetta í einhverju,“ segir Anton Már.
Setja plásturinn í gervigreindina
Klukkan tvö síðdegis var gefin út öryggisuppfærsla til að bregðast við gallanum. Anton Már segir tölvuþrjóta geta haft hraðar hendur við að finna gallann út frá plástrinum.
„Þetta var verkefni sem tók oftar en ekki daga eða vikur að gera áður fyrr en núna er þessu báðu bara hent inn í gervigreindarmódel og þau misnotuð til þess að brjótast inn með.“
Fólk hefur að sögn Antons tvo möguleika – að uppfæra kerfi sín sem fyrst eða taka síður sínar niður.