Samkvæmt tölum embættis landlæknis var þátttaka kvenna með erlent ríkisfang í boðuðum brjóstaskimunum aðeins 25 prósent á síðasta ári, samanborið við rúmlega 70 prósent meðal kvenna með íslenskt ríkisfang. Í leghálsskimunum tóku um átta af hverjum tíu konum með íslenskt ríkisfang þátt en aðeins ríflega þriðjungur erlendra kvenna.
Samkvæmt Hagstofu Íslands búa ríflega 30 þúsund konur með erlent ríkisfang hér á landi.
Brjóstaskimanir
Þátttökuhlutfall eftir ári og ríkisfangi
Í dag er Bleiki dagurinn en þá eru landsmenn hvattir til að bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma fyrir allar konur sem greinst hafa með krabbamein.