Að minnsta kosti 797 eru látnir eftir hamfaraflóð á landamærum Nepals og Tíbet í liðinni viku. Yfir þriggja þúsunda er saknað, þar á meðal eru hundruð erlendra ríkisborgara.
Um hundrað fastir í göngum vatnsvirkjunar
933 þeirra sem saknað er voru starfsmenn vatnsaflsvirkjunar sem voru við störf þegar flóðið féll. Talið er að um hundrað þeirra séu fastir í göngum virkjunarinnar. Búið er að gera gat á göngin til að loft komist inn.
Björgunarfólk, meðal annars frá Kína og Indlandi, hefur reynt að ná sambandi við fólkið en ekkert svar hefur enn borist úr göngunum.
Þá er mikill fjöldi þeirra sem saknað er ferðamenn eða pílagrímar. Auk ferðamanna frá Nepal og Kína sem voru á svæðinu þegar flóðið féll, er ferðamanna frá 33 öðrum löndum saknað.
Björgunarfólk þurfti að leita í öruggt skjól
Skriða féll í gærkvöld og myndaði nýtt lón sem talið er hætta á að bresti. Björgunarfólk í Gyurong í Tíbet þurfti því að leita í öruggt skjól á meðan hætta á svæðinu var endurmetin.
Yfirvöld á Indlandi segjast hafa fundið sjö lík í ám sem renna frá Nepal og telja að þau séu fórnarlömb flóðsins.
Bandaríkin, Kanada, Bretland, Kína, Malasía, Sameinuðu þjóðirnar, Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans og Evrópusambandið hafa heitið neyðaraðstoð.