„Það er þungt yfir þessarri samkomu og það byrjaði að rigna nánast um leið og dagskráin hófst, þannig að stemningin er eftir því,“ sagði Alda Vigdís Skarphéðinsdóttir, sem er búsett í Berlín og er stödd við Brandenborgarhliðið.
Samtök sem tengjast annari gleðigöngu í Berlín, Dyke March, voru búin að boða til þessarar samkomu við Brandenborgarhliðið. Dagskránni var hins vegar snögglega breytt, eftir árásina á Gleðigönguna í Berlín í gærkvöld, þar sem ein kona lést og næstum þrjátíu manns særðust, þegar sendibíl var ekið inn í mannfjöldann nálægt Tiergarten svæðinu í miðborginni.
Búist er við fólk safnist saman á fleiri samkomum í Berlín í dag.
Lýsir þessu sem hryðjuverkaárás
Lögregla handtók í morgun mann sem er grunaður um að vera viðriðinn ódæðið, en leitar enn að manni sem þýskir fjölmiðlar hafa nefnd Abdul B, og er talinn hafa ekið sendibílnum inn í mannfjöldann í gærkvöld. Sá maður er talinn vera með tengsl við öfgahópa íslamista.
Alexander Dobrint, innanríkisráðherra Þýskalands sagði á blaðamannafundi nú um hádegið að allt bendi til þess að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða; hann sagði ennfremur að ódæðismaðurinn hefði stigið út úr sendibílnum, ráðist að nærstöddum með sveðju og valdið nokkrum þeirra alvarlega áverka.