Úkraína og Evrópusambandið undirrituðu í dag samning um nánari samþættingu varnariðnaðar í ESB-ríkjum og Úkraínu. Tilgangurinn er að auðvelda sameiginlega framleiðslu, þróun og rannsóknir á hergögnum. Með því megi bæði styrkja varnir Úkraínu til skemmri tíma sem og framtíðaröryggi ESB-ríkja.
Samningurinn felur í sér fyrirheit um dýpri samvinnu um þróun dróna og drónavarna. Þar eru talin liggja tækifæri fyrir úkraínsk og evrópsk fyrirtæki til að nýta sér framleiðslugetu ESB-ríkja og reynslu Úkraínu af notkun dróna í hernaði.
Stefnt er á að hefja framleiðslu dróna fyrir lok þessa árs og framleiðslu á loftvarnakerfum gegn eldflaugum fyrir árið 2028.
Milljarður evra í drónaframleiðslu
Framkvæmdastjórn ESB afgreiddi í dag lán til Úkraínu upp á einn milljarð evra til kaupa á drónum. Það er hluti af níutíu milljarða láni sem ESB samþykkti fyrr á árinu. Framundan er 10 milljarða evra lán til allsherjarfjárfestingar til varna Úkraínu.