Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um þrjá þjófnaði og eitt innbrot í dag.
Málin komu upp á varðsvæði lögreglustöðvar 1, sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvar brotin voru framin eða hvort þau tengist.
Hrina innbrota og þjófnaða hefur verið á svæðinu eins og greint hefur verið frá á mbl.is. Frá 1. til 13. júlí voru 43 slík mál skráð á varðsvæði lögreglustöðvar 1, þar af 20 í miðborg Reykjavíkur. Karlmaður á fertugsaldri var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að fjölda innbrota.
Á sama svæði var óvelkomnum manni vísað brott og tilkynnt um efnaleka í gámi, en ekki reyndist þörf á aðkomu lögreglu. Þá var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna og sviptur ökurétti.
Reiðhjólamaður kvartaði yfir meiðslum
Á varðsvæði lögreglustöðvar 2, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, varð árekstur bifreiðar og reiðhjóls. Reiðhjólamaðurinn kvartaði yfir meiðslum en ekki kemur nánar fram hversu alvarleg þau voru.
Lögreglumenn á stöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, stöðvuðu ökumann sem grunaður er um akstur undir áhrifum áfengis. Þá var tilkynnt um fólk að neyta vímuefna við verslunarmiðstöð og var því vísað á brott.
Á varðsvæði lögreglustöðvar 4, sem nær meðal annars yfir Árbæ, Grafarholt, Grafarvog, Norðlingaholt, Mosfellsbæ, Kjalarnes og Kjós, var tilkynnt um fundin fíkniefni. Þau voru haldlögð. Tveir ökumenn voru jafnframt sektaðir fyrir of hraðan akstur.