Tuttugu og einn særðist þegar sprengjan sprakk við inngang veitingahúss við Kúdrínskaja-torg. Samkvæmt rússneskum miðlum reyndi kona að fara með sprengjuna inn í sal veitingahússins þegar hún sprakk í höndum hennar.
Konan lést auk öryggisvarðar og eins gestar. Öryggisvörðurinn hafði meinað henni að fara inn.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni í Moskvu.