„Það er bara í hefðbundnu ferli,“ segir Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Ástand mannanna hafi ekki verið gott og gistu þeir fangaklefa uns lögreglu yrði unnt að taka af þeim skýrslu.
Á Þingvöllum brann sumarbústaður í sumarbústaðahverfi til grunna í gærkvöldi. Málið er til rannsóknar og ekki liggur meira fyrir að svo stöddu.
„Nóttin gekk bara vel,“ segir Magnús. Margt hafi verið um manninn en ekki hafi komið upp nein fíkniefnabrot.