Eftir að lögreglu var tilkynnt um málið munu allir hlutaðeigandi hafa flúið vettvang. En eftir rannsókn lögreglu voru þrír handteknir, skammt frá vettvangi, vegna málsins.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en í henni kemur fram að engin stórvægileg meiðsli urðu á fólki vegna árásarinnar.
Þetta átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sér um verkefni í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi. Þess má geta að Menningarnótt fór fram í Reykjavík í gærkvöldi. Mikill erill var hjá lögreglu.
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.
Í dagbókinni segir einnig að lögregla hafi handtekið mann fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar. Við handtöku hafi maðurinn streist mikið á móti og beitt lögreglumann ofbeldi. „Hann verður því einnig kærður fyrir brot gegn valdstjórninni,“ segir í dagbókinni.
Þá var annar handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt, en sá var að stofna til slagsmála. Samkvæmt dagbókinni reyndist hann einnig varsla fíkniefni.
Einn var handtekinn fyrir vopnaburð á almannafæri en hann var vopnaður tveimur hnífum.
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.