Þrír sakborningar í Gufunesmálinu svokallaða hafa lagt inn áfrýjunarbeiðni til Hæstaréttar.
Þetta staðfesta verjendur þeirra í samtali við mbl.is.
Þeir sakborningar sem hafa áfrýjað dómi Landsréttar eru Stefán Blackburn, Lúkas Geir Ingvarsson og kona sem var ákærð í málinu.
Stefán, Lúkas og Matthías Björn Erlingsson voru ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán með því að hafa 11. mars á síðasta ári svipt Hjörleif Hauk Guðmundsson lífi.
Matthías, sem hlaut tólf ára dóm í Landsrétti, hefur ákveðið að áfrýja ekki dómnum. Sævar Þór Jónsson, lögmaður Matthíasar, segir að farið hafi verið yfir niðurstöðu Landréttar með tilliti til hagsmuna Matthíasar.
„Þegar litið er til allra aðstæðna er það mat hans að niðurstaðan í Landsrétti hafi verið ásættanleg. Matthías mun una þeirri niðurstöðu og verður því ekki óskað eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Málinu er þar með lokið hvað hans þátt varðar,“ segir í svari Sævars.
Málið reynst þungbært
Dómur yfir Matthíasi var mildaður í Landsrétti en hann hafði verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi í héraði.
Í svari Sævars segir að málið hafi reynst Matthíasi og aðstandendum hans erfitt og nú muni hann einbeita sér að því að byggja upp líf sitt.
Vilja láta endurskoða viðsnúning
Landsréttur mildaði og þyngdi dóma Héraðsdóms Suðurlands í málinu 13. maí. Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson fengu báðir sautján ára dóm í héraði. Landsréttur mildaði dóma þeirra lítillega og dæmdi þá í 16 ára fangelsi.
Kona sem var ákærð í málinu var sú eina sem fékk þyngri dóm í Landsrétti. Hún var ákærð fyrir hlutdeild í frelsissviptingu og ráni.
Landsréttur sakfelldi hana fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en hún var sýknuð af hlutdeild í ráni. Hlaut hún sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Landsrétti.
„Það er nauðsynlegt að þessi viðsnúningur Landsréttar sæti endurskoðun. Manni sýnist dómurinn ekki standast rökfræðilega athugun,“ segir Jón Bjarni Kristjánsson, lögmaður konunnar, í samtali við mbl.is.
Fjórði maðurinn sem var ákærður í málinu fékk tveggja ára skilorðsbundinn dóm í héraði en var sýknaður í Landsrétti.
Hæstiréttur hefur ekki tekið afstöðu til áfrýjunarbeiðni sakborninganna og því er óljóst hvort æðsta dómstig landsins taki málið fyrir.