Þriggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut við Sprengisand fyrir skömmu, en ekki urðu alvarleg slys á fólki, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Bæði sjúkrabíll og slökkviliðsbíll voru sendir á staðinn en ekki þurfti að flytja neinn af vettvangi í sjúkrabíl, þar sem áverkar fólksins reyndust minniháttar.
Töluverðar umferðartafir urðu vegna slyssins og er enn verið að greiða úr þeim.