Þetta eru niðurstöður könnunar Maskínu sem unnin var fyrir Sprengisand á Bylgjunni. Líkt og fram hefur komið hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis ákveðið að taka Landsvirkjunarmálið til skoðunar og kalla eftir gögnum og samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar. Hörður Arnarsson lét nýverið af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar og sagði meðal annars að hann hefði ekki verið boðaður á stjórnarfundi.
Stjórn Landsvirkjunar hefur sagt að skoðun óháðra aðila á athugasemdum Harðar um stjórnarhætti hafi leitt í ljós að stjórnin hafi ekki farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt eða heimildir. Þá hefur stjórnin fullyrt að Herði hafi ekki verið haldið frá umræðu um rekstur félagsins og stjórnin hafi ekki skipt sér af daglegum rekstri Landsvirkjunar.
Könnunin for fram 29. október til 5. nóvember. Svarendur voru 989 talsins. Spurt var: Berð þú mikið eða lítið traust til stjórnar Landsvirkjunar. Flestir svöruðu því að þeir bæru traust í meðallagi til Landsvirkjunar eða 37 prósent. 6,8 prósent segjast bera mjög mikið traust til stjórnarinnar.