Að minnsta kosti 13 manns létust þegar lítil flugvél hrapaði í Perú í dag. Að sögn lögreglu var vélin á leið með ferðamenn að skoða Nazca-línurnar.
„Við höfum upplýsingar um að 11 farþegar og tveir áhafnarmeðlimir hafi látist,“ sagði Jorge Andrade lögreglustjóri við fréttamenn á slysstað í suðurhluta landsins, að því er fram kemur á AFP-fréttastofunni.
Slysið varð skömmu eftir að vélin tók á loft frá flugvellinum í Pisco, sem er staðsettur um 240 kílómetra suður af höfuðborginni Líma.
„Miðað við alvarleika slyssins eru engir eftirlifendur. Við höfum fundið fjögur lík hingað til,“ sagði Andrade.
Hann gaf enga vísbendingu um hvað gæti hafa valdið hrapinu. Flugmálayfirvöld í Perú munu rannsaka atvikið.
Slökkviliðsmenn og lögregla voru að störfum á vettvangi mitt í glóandi braki flugvélarinnar.
Ekki í fyrsta sinn sem flugslys verður á svæðinu
Slys á borð við þetta hafa gerst áður. Árið 2022 létust sjö manns í flugslysi á svæðinu og í október 2010 létust fjórir breskir ferðamenn og tveir perúskir áhafnarmeðlimir þegar flugvél AirNasca hrapaði eftir að hafa farið með ferðamennina til að skoða svæðið.
Tugir lítilla flugvéla fljúga frá flugvellinum í Pisco og sjá um mikinn fjölda ferðamanna sem vonast til að heimsækja Nasca-línurnar.
Línurnar eru á heimsminjaskrá UNESCO og er talið að formin sem þær mynda hafi líklega verið dregin í yfirborðið fyrir um tvö þúsund árum. Óvitað er hver bjó til myndirnar eða í hvaða tilgangi.