60 prósent eru andvíg þéttingu byggðar í nærumhverfi sínu en 22 prósent eru henni andvíg. Þetta eru niðurstöður viðhorfskönnunar fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Afstaðan er mjög breytileg eftir aldursflokkum og öðrum þáttum.
Fólk á aldrinum 25 til 34 ára er líklegast til að vera hlynnt þéttingu, 36% á þeim aldri segjast mjög eða frekar hlynnt henni. Fleiri í þeim aldursflokki eru þó andvíg þéttingu, 47%.
Af íbúum einstakra sveitarfélaga eru Mosfellingar andvígastir þéttingu byggðar, 84% eru á móti henni en tvö prósent fylgjandi. Fjórðungur Reykvíkinga og Garðbæinga er fylgjandi þéttingu en tæplega þrír af hverjum fimm andvígir.
Mikill munur er á afstöðu fólks eftir hverfum. 52% íbúa í miðbæ og gamla Vesturbæ Reykjavíkur eru hlynnt þéttingu en 34% andvíg. Mest er andstaðan við þéttingu byggðar í efra Breiðholti í Reykjavík, 86% .
Fólk sem býr í litlu húsnæði er líklegra til að vera fylgjandi þéttingu en það sem býr í stærri eignum og fólk sem ferðast fótgangandi, hjólandi eða í strætó er mun hlynntara þéttingu byggðar en það sem ferðast með einkabíl.
40% landsmanna vilja hafa tvö bílastæði við íbúð sína eða fasteign, samkvæmt sömu könnun. 26% vilja eitt bílastæði og 17% vilja þrjú stæði. Fleiri vilja fá fjögur bílastæði við fasteign sína en ekkert. 14% vilja fjögur stæði en aðeins 4% vilja vera án bílastæðis, samkvæmt könnuninni.
Yngsta fólkið er bæði líklegast til að vilja ekkert eða fjögur bílastæði og elstu svarendur eru því andsnúnastir að vera án bílastæðis. Fjórðungur svarenda í Kópavogi og Mosfellsbæ vill fjögur bílastæði.
Eftir því sem húsnæði fólks verður stærra og heimilisfólk fleira er það líklegra til að vilja fjögur stæði.