„Fyrrum forseti Íslands skoðar sjö raundæmi með því að hafa asklok fyrir himin. Þegar asklokinu er lyft og raundæmin skoðuð í heild virka þau sem sterkur rökstuðningur fyrir fullri Evrópusambandsaðild. Enn fremur hefur ekkert það gerst sem réttlætir að kippa þeim megin stoðum undan utanríkisstefnunni sem felast í hugmyndafræði vestrænna gilda, sem snýst um lýðræði og frjáls viðskipti.
Þorsteinn Pálsson tætir í sig hræðsluáróður Ólafs Ragnars Grímssonar um Ísland og ESB