Þorgerður gerir ESB að athlægi og Íslandi skömm

Viðhorfskannanir síðustu ára sýna að 60 til 70 prósent þjóðarinnar er andvíg ESB-aðild. Þorgerður Katrín utanríkisráðherra er formaður Viðreisnar sem fékk 15,8% kjörfylgi í síðustu þingkosningum og er eini ESB-flokkurinn á alþingi. Fingurbrjótur formanns Viðreisnar í háalvarlegu máli sem varðar Íslendinga ekki eina er ekki án pólitískra afleiðinga.
Formaður smáflokks á alþingi misnotaði stöðu sína í veikburða samsteypustjórn til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um dautt ESB-aðildarhross. Formaður Viðreisnar lítur á samlanda sína sem einfeldninga er móta má með blekkingum og ríkisáróðri til fylgilags við ESB-aðild.
Þorgerður Katrín stillti þjóðaratkvæðinu þannig upp að spurt var hvort þjóðin vildi tala við Brussel um aðildarsamning. Fengi utanríkisráðherra já var ætlunin að hefja aðlögun inn í Evrópusambandið þar sem ekki yrði aftur snúið. Ísland yrði innbyrt af ESB í aðlögunarferli.
Þjóðin sá við Þorgerði Katrínu og sagði nei, þú færð ekki heimild okkar að tala við Evrópusambandið. Svona fyrst þú spurðir.
Í dag hlær heimsbyggðin að Evrópusambandinu. ESB er svo geislavirkt að smáþjóð á Norður-Atlantshafi hafnar að tala við sambandið, hvað þá meira. Þorgerður Katrín, ein og óstudd, er ábyrg fyrir að Evrópusambandið verður að athlægi. Íslensk hreppapólitík er eitt, annað er að lítillækka ríkjasamband sem Ísland á vinsamleg samskipti við.
Þjóðaratkvæði í þágu Viðreisnar átti aldrei að fara fram. Ekkert ákall var í samfélaginu um að nú væri rétti tíminn að hefja ESB-leiðangur. Skelfilegur einleikur Þorgerðar Katrínar hefur pólitískar afleiðingar. Ekki er boðlegt að Þorgerður Katrín fari sem utanríkisráðherra til Brussel að afsaka innlent gönuhlaup er verður til álitshnekkis fyrir Evrópusambandið og gerir Íslandi skömm til.