Formaður VR hefur þungar áhyggjur af áhrifum aukinnar verðbólgu á launafólk. Hún segir mikilvægt að fyrirtæki og sveitarfélög axli meiri ábyrgð á ástandinu.
Verðbólga var 5,1 prósent í maí og stendur því sem næst í stað frá því í apríl, þá var hún 5,2 prósent. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir haustið geta orðið þungt með þessu áframhaldi.
„Við höfum alveg verið skýr með það að við teljum ekki endilega að almennar launahækkanir séu það besta í stöðunni. Hins vegar er það svo að það er eina tækið sem við höfum.“
Halla segir ljóst að forsendur kjarasamninga séu að bresta. Þar virkjast endurskoðunarákvæði í lok október ef verðbólga mælist meiri en 4,7%.
„Með kjarasamningunum sem voru undirritaðir fyrir rúmum tveimur árum síðan var gert ráð fyrir því að launafólk myndi undirgangast lágar launahækkanir en að fyrirtæki myndu stilla verðhækkunum í hóf og hið opinbera myndi stilla gjaldskrárhækkunum í hóf.“
„Hvorugt af þessu síðarnefnda hefur raungerst þannig að við erum í þeirri stöðu að þakið hefur bara verið á okkur en ekki á hinum og það er auðvitað ástand sem við getum ekki fellt okkur við áfram.“
Kallar eftir kröftugri aðgerðum í húsnæðismálum
Halla segir brýnt að fyrirtæki axli ábyrgð á ástandinu. Í því skyni vísar hún sérstaklega til matvöru, heildsölu og þeirra kostnaðarliða sem hafa hvað mest áhrif á daglegt líf fólks. Sömuleiðis þurfi sveitarfélög að standa við gefin loforð.
„Síðan þyrftu sveitarfélög að standa við sín loforð um að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf og helst ættu þau að afturkalla þær gjaldskrárhækkanir sem hafa verið yfirgengilegar og þá erum við sérstaklega að horfa á heitt vatn og rafmagn og svo leikskólagjöld. Allt þetta samanlegt gæti orðið til þess að það myndi skapa einhverjar forsendur fyrir því að samningar gætu haldið, en þeir halda ekki að óbreyttu.“
Hækkanir á húsnæðisleigu hafa einnig áhrif á verðbólguna, segir Halla. Leiga sé tengd við verðbólgu sem þýði að aukin verðbólga hækki leiguverð. Það hafi bæði áhrif á liðinn sem mæli húsaleigu og liðinn sem mæli kostnaðinn við að búa í eigin húsnæði.
„Þannig að þarna ertu kominn með spíral sem er mjög slæmur og við höfum almennt áhyggjur af húsnæðismálum. Þar þarf miklu skýrari sýn og miklu kröftugri aðgerðir, bæði til þess að vinna á verðbólgu dagsins í dag og á verðbólgu framtíðarinnar.“