Forseti Íslands segir að margir sem tjá sig um þjóðaratkvæðagreiðsluna um viðræður við ESB í lok sumars geti vandað orðræðuna betur. Hún hvetur fólk til að staldra við og hugsa áður en það talar.
Alþingi samþykkti í lok maí þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þjóðaratkvæðagreiðslan verður 29. ágúst og nú berjast báðir hópar um athygli kjósenda, þeir sem ætla að segja já og þeir sem ætla að segja nei.
„Þarna er lýðræðisleg æfing fyrir þjóðina og ég vona og vil treysta því að þjóðin ætli að nýta það tækifæri vel til að æfa sig í að skiptast á skoðunum með virðingu. Ég hvet alla sem tala hátt, skrifa í hástöfum, tjá sig mikið og deila upplýsingum að staldra við,“ segir Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, í viðtali við fréttastofu.
Finnst margir geta vandað orðræðuna
Halla hvetur fólk til að hugsa vel um það sem það setur fram og velta fyrir sér hvort það verði stolt af þeim orðum síðar meir og gefa sér meiri tíma ef svo er ekki.
„Það er fullkomlega eðlilegt að við höfum ólíkar skoðanir á jafn stóru máli og hér er borið undir þjóðina. Það heitir lýðræði.“
Höllu finnst margir, óháð afstöðu, geta vandað orðræðuna betur. Tilfinningar um málið séu sterkar og því ráð að fara ekki of geyst í að tjá sig opinberlega. Forsetinn vonar að fólk vandi sig og kanni uppruna upplýsinga um atkvæðagreiðsluna vegna mikils magns rangra upplýsinga sem er í umferð.