Fundum Alþingis hefur verið frestað til 8. september og er 157. löggjafarþingi því lokið. Þinghlé og sumarleyfi þingmanna er fram undan.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra bar upp tillögu þess efnis klukkan rúmlega 16 í dag og var hún samþykkt af öllum viðstöddum þingmönnum.
Þingflokksformenn höfðu stefnt að því að ljúka þingstörfum í dag og það hefur því tekist.
22 mál voru á dagskrá þingfundar í dag.


