Formaður félags fósturforeldra segir að leyfakerfi sem komið var á 2022 hafi reynst flókið í framkvæmd. Úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála afhjúpi tækifæri til úrbóta og með henni sé loksins komið yfirlit um öll börn í fóstri og fósturheimili.
„Ef við ætlum að fara að bæta þetta kerfi þá þurfum við að vita hvert umfangið er,“ segir Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra.
Úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála sýnir fram á að um 46% fósturheimila hafi ekki tilskilið leyfi til fósturs. Þá reyndist eftirlitsheimsóknum barnaverndarþjónustu ábótavant í mörgum tilvika.
Niðurstöður úttektarinnar komu Guðlaugi ekki á óvart og segir þær ríma við þá aðstoð sem Félag fósturforeldra veitir meðlimum sínum. Hann fagnar úttektinni enda hafi félagið lengi kallað eftir betri gögnum og betra utanumhaldi. Hingað til hafi ekki verið til góð yfirsýn um fósturbörn og fósturheimili. Hann segir nýja leyfakerfið hafa átt að koma skikki á það en það hafi ekki gengið sem skyldi.
Segir endurnýjun leyfa hafa reynst flókna í framkvæmd
Guðlaugur bendir á að leyfakerfinu hafi verið komið á með lagabreytingu frá 2022. Þá tók Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála við eftirliti með fósturheimilum sem hafði áður verið að könnu Barnaverndarstofu.
Stofnunin hefur ekki aðgang að skrám barnaverndar sveitarfélaga yfir fósturbörn og fósturheimili svo hún reiddi sig á að Barna- og fjölskyldustofa ásamt barnavernd sveitarfélaganna upplýsti fósturforeldra um að þau þyrftu að endurnýja fósturleyfi. Áður voru fósturleyfi ótímabundin en síðan GEV tók við eru leyfin gefin út til fimm ára í senn.
Guðlaugur segir að endurnýjun leyfanna hafi reynst flókin og erfið í framkvæmd. Fósturforeldrar sem áður höfðu ótímabundin leyfi áttu í erfiðleikum með að endurnýja leyfið.
„Ein krafan var til að mynda læknisvottorð. Oft og tíðum var erfitt að fá tíma hjá lækni og læknar voru tregir til að gefa út læknisvottorð því þeir vissu ekki hvað þeir áttu að votta,“ segir Guðlaugur. Þá hafi umsóknarferli um endurnýjað leyfi ýft upp tilfinningar hjá fósturforeldrum sem höfðu haft börn lengi hjá sér.
Niðurstöður úttektar rími við tilfinningu félagsmanna
Hann segir gagnrýni í úttektinni á eftirlit og eftirfylgni barnaverndarþjónustu sveitarfélaganna ríma við tilfinningu félagsmanna sinna sem hafi gagnrýnt skort á stuðningi.
Í smærri sveitarfélögum, þar sem fá börn séu í fóstri, hafi borið á að stuðningur hafi verið af skornum skammti.
Þá bendir hann jafnframt á að kanna þurfi nánar stöðu barna sem vistuð eru í bráðavistun, samkvæmt 84. grein barnaverndarlaga. Það úrræði á ekki að vara lengur en þrjá mánuði en dæmi eru um að börn hafi verið vistuð samkvæmt þeirri heimild í lengri tíma.
Í úttekt GEV segir að stofnunin hafi vitneskju um að í þónokkrum tilfellum hafi barnaverndarþjónustur vistað börn á einkaheimilum til lengri tíma og jafnvel fjölda ára. Guðlaugur segir litlar upplýsingar til um stöðu þessara barna og þá þjónustu sem þau fá.