Ólafía Hrönn, sem valin var leikkona ársins á Íslensku sjónvarpsverðlaununum fyrir Svörtu sanda II, hefur að undanförnu verið að þvælast um landið ásamt Erni Árnasyni, söngvurum og hljómsveit, en þau hafa verið að kynna óperudagskrá.
„Já, þetta er sniðugt dæmi. Ýmsir landshlutar eru svekktir yfir því að fá okkur ekki. Þetta er dýrt en tilefnið er stofnun Þjóðaróperu. Ég skil reyndar ekki alveg sameininguna, satt að segja, nema að sumu leyti. En það er verið að fara með svona óperudagskrá út á land með þessum fjórum nýráðnu fastráðnu söngvurum við Þjóðaróperuna. Þetta er í fyrsta skipti sem óperusöngvari er fastráðinn þannig að þetta er flott.“
Fastráðnir söngvarar við Þjóðaróperuna eru fjórir, sem er nýtt og tveir bætast við eftir áramót.
„Það var sett upp ópera í Háskólabíói á sínum tíma um einhvern trúð og varð svona ægilega vinsæl. Og þá stofnuðu þau Íslensku óperuna.
Best er að vara lesendur við því strax að hér verður vaðið úr einu í annað. Ólafía Hrönn segir að þau Örn hafi mest verið í að lesa texta og skipta um föt. Þú sagðir mér að Örn hefði verið frekar spældur yfir því að fá ekkert að syngja?
„Ég hef aldrei sagt að hann væri spældur. Ég sagði að hann langaði að syngja. Og hann fær aðeins að syngja.“
Jæja.
„Já, já. En ég veit að hann Örn hefði ekki neitað því að fá að syngja með heila sinfóníuhljómsveit á bak við sig. Og kór.“
Ólafía Hrönn lýsir söngvurunum og sinfóníusveitunum sem að þessu verkefni koma sem og kórunum sem stórkostlegum.
„Þegar við fórum norður var það Sinfónía Norðurlands og Kammerkór Akureyrarbæjar og kór Akureyrarkirkju. Tveir kórar voru settir saman. Og alltaf er þetta nýr og nýr kór og ný hljómsveit á hverjum stað. Við fórum til Eskifjarðar. Þá var það Sinfóníuhljómsveit Austurlands. Svo vorum við í Reykjanesbæ í síðustu viku og þá var það fólkið þaðan. Og alltaf er gestasöngvari frá hverjum stað. Við eigum bara Skálholt eftir og svo er það síðasta sýningin í Þjóðleikhúsinu.“
Ólafía Hrönn verður fyrir vitrun
En Vestfirðirnir sitja svekktir eftir og Suðausturland, að sögn Ólafíu.
Sko, mig langaði til að fara aðeins yfir ferilinn þinn sem mér þykir vera alveg einstaklega spennandi…
„Af hverju?“
Spyrlinum vefst tunga um tönn, í fyrsta en ekki síðasta skipti í þessu viðtali. Jahh, mér finnst þú bara vera svo fjölhæf leikkona, Lolla. Þú ert alltaf kölluð Lolla. Af hverju er það?
„Af því að mamma hét líka Ólafía og hún var kölluð Olla. Það spyr enginn út í það.“
Olla og Lolla.
„Já, til aðgreiningar, svona Olla, lalalalala.“
Lá alltaf fyrir að þú yrðir leikkona? Hvernig kemur þetta til?
„Já. Hversu oft hef ég svarað þessari spurningu?“
Þetta er bara mjög fagleg spurning.
„Ókei. Það er alveg gott og gilt að svara þessu 30 sinnum á starfsævinni. En, sem sagt, þegar ég sá leikrit í fyrsta skipti þá bara, heyrðu, þetta er ég!“
Einhver vitrun?
„Já, ég bara horfði og hugsaði: Þetta er það sem ég get. Þetta var leikrit hjá Réttarholtsskóla og hét Músin í sultunni. Ókei. Þetta voru bara krakkar að leika og ég fann að ég gæti gert þetta. Þarna er ég svona 7–8 ára.
Já. Svo flutti ég á Hornafjörð og fór þá að taka þátt í leikritum hjá Leikfélaginu og hugsaði: Ef þetta gæti orðið starfið mitt yrði ég óskaplega hamingjusöm. Þegar ég átti heima í Fossvoginum og var búin að sjá og upplifa þetta. Og ef enginn var heima var ég að æfa mig. Var jafnvel að gráta og setja upp senur. Um átta ára. Þetta bara heltók mig.“
„Stórkostlegasta sem ég hafði heyrt“
Lolla minnist þess að hafa einhverju sinni verið að leika í leikriti í Breiðagerðisskóla.
„Ég lærði allan textann án þess að fara á æfingu. Svo áttum við bara svona að leiklesa þetta fyrir bekkinn. Ég man hvað ég var svekkt. Það skipti engu máli hvort maður hefði lært textann. Ég mátti hafa bókina ef ég vildi. Njáll Guðmundsson var yndislegur kennari en ég skildi ekkert í honum að vera ekki svolítið harðari með þetta.“
Algjört svindl. Nema, mér finnst alltaf athyglisvert og aðdáunarvert í raun þegar fólk finnur fjölina strax og veit hvað það ætlar að verða. Þú hefur verið ein af þeim?
„Já, ég er ein af þeim. Ég sat eitt sinn fyrir utan Heppuskóla á tröppunum á Hornafirði að reykja, já, ég byrjaði rosalega snemma að reykja, og út kemur kennari minn hún Margrét Einarsdóttir. Margrét var idolið mitt. Hún kom frá Reykjavík og var flottasta manneskja sem ég hafði séð. Hún var að labba úr vinnunni, lítur á mig og segir: „Lolla, þú hefur aldrei hugsað um að verða bara leikkona?“ Þetta var það stórkostlegasta sem ég hafði heyrt og breytti öllu fyrir mig. Þarna var þessi manneskja sem ég leit svona rosalega upp til sem sagði það besta sem ég gat heyrt í lífinu. Þannig var það.“
Og vegurinn hefur verið varðaður.
„Já, svo fer ég á Laugarvatn. Ég man margar áhyggjustundir þar sem ég horfi á hraunið á Hellisheiðinni og hugsa: Ef mér tekst þetta ekki, hvað þá? Verður ekki líf mitt ömurlegt? Ég vissi ekki einu sinni hvernig ég ætti að fara að því að verða leikkona, hvar skólinn var, ekki neitt.
En ég var bara tvö ár á Laugarvatni af því ég vildi fara í leiklist. Ég fór þá til Reykjavíkur, fór í skólann hjá Helga Skúlasyni. Og þar náttúrulega kynntist maður þessu öllu, hvernig maður ætti að fara og sækja um í leiklistarskólanum og svona.“
Þá eru bara einar dyr, að komast inn í leiklistarskólann, er það ekki?
„Á þessum tíma? Jú, jú, eða, fólk var nú líka farið að fara til London að læra leiklist. En mig langaði að vera hérna á Íslandi.“
Var alltaf stressuð í Leiklistarskólanum
Ólafía Hrönn komst ekki inn í skólann í fyrstu tilraun.
„Nei, ég held ég hafi verið ung í fyrra skiptið. Ég var bara átján en maður átti að vera nítján þegar maður sótti um. En ég sem sagt komst ekki áfram þarna í fyrra skiptið.“
Hvernig stóð á því?
„Þú verður að spyrja dómnefndina. En eins og ég segi, ég gat útskýrt þetta fyrir mér að ég væri of ung. Ef ég hefði ekki gert það er hætt við að ég hefði sagt: Vá, svo hef ég bara ekkert í þetta að gera. Af því ég komst ekkert áfram. Þannig að ég ákvað að klára stúdentinn og sækja svo aftur um eftir tvö ár.“
Var þetta ekki svolítið þannig að þau voru að setja fyrir sig það að fólk væri ekki búið að fara í framhaldsskóla?
„Nei, ekki þá nefnilega. Það kemur seinna þegar skólinn var settur á háskólastig. Til þess að hækka laun kennaranna, held ég.“
En þú kemst inn og hvernig var í Leiklistarskólanum? Ég var svolítið að fylgjast með þessu á sínum tíma og þetta var ansi öflugur hópur. Þarna var til að mynda Valgeir Skagfjörð sem samdi svo frábært lag sem ég pikkaði meira að segja upp á gítarinn; Hæ hopp út í veður og vind?
„Já, hann var þarna. Þetta vorum við Ingrid Jónsdóttir og Þórdís Arnljótsdóttir fréttakona. Þetta voru stelpurnar. Svo var Halldór Björnsson sem hætti í leiklistinni, fór í lögfræði og er héraðsdómari, Hjálmar Hjálmarsson, Stefán Sturla sem býr úti í Finnlandi, Þórarinn Eyfjörð.“
Já, seinna verkalýðsleiðtogi. Hann er einn þeirra sem komu sér upp neyðarsjóði eftir að hafa barist fyrir verkalýðinn.
„Jú, mér skilst það.“
Hvernig var í leiklistarskólanum? Var þetta ekki fjör?
„Jú, eða, ég var svolítið stressuð. Já, ég var svo hrædd um að fólkið myndi sjá eftir því að hafa tekið mig inn í skólann. Svo verð ég ólétt þarna á öðru ári og ég var svo hrædd um að ég yrði rekin líka út af því.“
Nú, hvaða, hvaða, þetta hefur verið hálfgerð martröð fyrir þig?
„Eiginlega. Eða, þetta gerði það að verkum að ég var ekkert mikið að hitta krakkana fyrir utan skólann eins og kannski meira er um í dag. Þau eru öll svona einhvern veginn í hrúgu saman og alltaf að gera eitthvað saman. En ég hitti bara ekki mína skólafélaga fyrir utan skólann. Ég var bara mamma.“
Leikhússtjórar bítast um Lollu
Eftir skóla segist Lolla hafa verið svo heppin að Þórunn Sigurðardóttir ræður hana til að leika í Síldin kemur, síldin fer.
„Þetta var smellandi hlutverk fyrir mig. Ég var að leika Jöklu þar. Og ég fékk eitt hlutverk á ári þarna hjá LR sem mér fannst bara æðislegt, sko. Ég var alltaf að leika síðasta hlutverkið mitt.“
Hvað meinarðu, síðasta hlutverkið þitt?
„Ég hélt bara að ég fengi þetta hlutverk og svo væri þetta búið. En ég lék mikið á barnaheimilum á þessum tíma. Við Ingrid settum upp barnasýningar og við fórum með þrjár eða fjórar barnasýningar á öll barnaheimili hérna á Reykjavíkursvæðinu og meira að segja úti á land.“
Já, já, þú ert strax þar og þá byrjuð að leika fyrir blessuð börnin.
„Já, það var á daginn en bara á virkum dögum. Maður vaknaði eldsnemma og skóflaði hérna leikmyndinni inn í bíl. Ég og Ingrid settum til að mynda upp Karíus og Baktus og fórum til dæmis í Keflavík, eins og það hét þá, og lékum eitt sinn sex sýningar í röð.
Svo hætti Ingrid í þessum bransa en ég hélt áfram og fór með fjórar sýningar á barnaheimili. Og var þá að vinna með Öldu Arnar og Þór Túliníus, meðal annarra. Þetta var rosalega góður skóli af því maður lék svo rosalega mikið. Endurtekningin getur reynst þröskuldur í leiklistinni en maður finnur alltaf flöt. Svona var lífið í hvert einasta sinn.“
Svo gerist það um þessar mundir að það verða leikhússtjóraskipti í bæði Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Sigurður Hróarsson tekur við LR og Stefán Baldursson í Þjóðleikhúsinu.
„Þeir hringdu bara með klukkutíma millibili.“
Núna, bara bitist um Lollu?
„Já. Þá hugsaði maður með sér að þarna væri kannski eitthvað. Stefán Baldursson hringdi í mig fyrst. Ég hafði bara leikið hjá LR. Og ég hugsaði: Heyrðu, það væri gaman að prófa Þjóðleikhúsið. Og sagði já við hann. Og réð mig þangað. Og síðan hef ég verið þar. Þetta var 1991. Hvað eru þá komin mörg ár? 35 ár.
Starfsöryggi og leiklistarfangelsi
Þetta er mikill slagur, mikil barátta hjá leikurum um að komast á samning. Og Þjóðleikhúsið er náttúrulega musteri íslenskrar leiklistar og íslenskrar tungu.
„Það má eiginlega segja það og mér hefur alltaf fundist ég vera lukkunnar pamfíll hvað þetta varðar. Ég á þrjú börn og það hefur svolítið verið mitt að sjá um þau. Þannig að ég kaus starfsöryggið. En þetta er líka leiklistarfangelsi. Þú ræður ekkert yfir þér. Og stundum verður maður pínu þreyttur á því þó að maður sé auðvitað lukkunnar pamfíll að búa við starfsöryggi. En þetta er hin hliðin á því; þú ræður ekki yfir tíma þínum né hlutverkum. Og þú veist aldrei fram í tímann hvort þú getir verið þarna eða í þessu – það er bara einhver mánuður fram í tímann.“
Hlutskipti leikarans á Íslandi almennt, þetta er auðvitað gríðarleg barátta bara við að hafa í sig og á. Eða hvernig horfir þetta við þér?
„Já. Launin fyrir leikarastarfið bara í leikhúsunum hafa aldrei verið góð. Það góða hins vegar við þetta starf er að maður getur fengið aukavinnu með annars staðar en í leikhúsinu. Þannig hefur maður sætt sig við þessi lélegu laun. Nú er ég komin í efsta flokk og hún Lilja Alfreðs, fyrrverandi menntamálaráðherra, hún var svo vinsamleg að hækka laun elstu leikaranna.
Þannig að þeir fá miklu betri laun fimm síðustu árin áður en þeir hætta. En til dæmis ungu leikararnir sem eru að leika í húsinu baki brotnu eru ekki öfundsverðir. Við erum miklu færri núna sem erum fastráðin í Þjóðleikhúsinu, við sem höldum húsinu uppi. Við erum helmingi færri en var. Þannig að það er álag á leikaragrúppunni og þá eru minni tækifæri til þess að fara út úr leikhúsinu og ná sér í aukapening. Svo hafa reglurnar verið hertar innan Þjóðleikhússins. Að ef leikari er að fara að vinna í kannski bíómynd eða sjónvarpsseríu þá er hann tekinn af launum á meðan.“
Lolla segir að þannig hafi þetta ekki verið í gamla daga, í tíð Stefáns Baldurssonar.
„Honum fannst mjög jákvætt að leikararnir færu út úr húsinu að leika því að það skilaði sér í áhorfi til leikhússins.“
Þetta vakti athygli á leikaranum?
„Já, nákvæmlega, leikararnir urðu meira spennandi við það og að sjá þá svo lifandi á sviði. Ætli hann hafi ekki gert sér grein fyrir því líka að þetta þurfti til að geta framfleytt sér af laununum; að svo við gætum lifað af leikaralaununum þyrftum við að fá okkur aukavinnu.“
Jafnvíg á drama og kómík
Það hefur orðið talsverð breyting á högum leikara. Ég hef heyrt utan að mér að yngri leikarar kvarti undan því að þeir séu bara ekkert einu sinni þekktir?
„Jú, það er náttúrulega svo miklu meira framboð á alls kyns afþreyingu núna. Og línulega dagskráin er dauð nema bara hjá fólki á okkar aldri.“
Einmitt. Við erum jafnaldrar þannig að við tilheyrum heldri deildinni.
„Ert þú fæddur '62?“
Jú. En þú þarft ekki að kvarta undan því að þú sért ekki þekkt. Þú hefur verið að leika jöfnum höndum á sviði og svo á skjánum allan þinn feril? Í bíói. Og svo hefur þú verið að leika drama og kómík jöfnum höndum. Það er ekki á færi allra leikara?
„Takk fyrir það. Nei, kannski ekki.“
Er þetta mikið frábrugðið að leika kómík og svo dramatík?
„Já. Þú nærð í eitthvað allt annað þegar þú ert að vera fyndinn eða þegar þú ert að ná í dramatík. Þú ert bara að ná í allt aðra hluti.“
Geturðu lýst þessu nánar fyrir mér?
„Já, hvernig er hægt að lýsa þessu fyrir þér? Þú kveikir bara á einhverjum húmor, sérð hlutinn á fyndinn hátt ef þú ætlar að vera fyndin.
En svo verðurðu að slökkva á þessu ef þú ætlar að gera þetta í fúlustu alvöru og hafa dramatík.“
Er þetta svona „method acting“ eða hvað?
„Nei, ég myndi ekki segja það. Þetta er frekar spurning um hugarfar, að sjá hlutina í sérstöku ljósi. Maður verður að hafa á valdi sínu að geta slökkt á húmornum þegar það á við og öfugt.“
Fólk hefur verið að festast í ýmist kómík eða dramatík.
„Það er minni áhersla lögð á hið dramatíska í skólanum. Allavega þegar ég var þar.“
„Nú er ég tilbúin að verða fræg“
Þú hefur leikið í mörgum áramótaskaupum?
„Já,“ segir Lolla og hugsar sig um. „Eitt svolítið fyndið. Hann Stefán Baldursson leikstýrði mér í Nemendaleikhúsinu og við vorum öll að tala saman. Eða hvort ég var bara að tala við hann og ég sagði eitthvað svona: „Ja, veistu, ég er tilbúin að verða fræg.“ Þetta hljómaði rosa hrokafullt. En á hinn bóginn gerði ég mér grein fyrir því hvað var auðvelt að verða frægur á Íslandi. Sem er það sem gerðist. Ég lék í áramótaskaupi '89 og það tók mig bara eina nótt, sko. Eiginlega allir vissu hver þetta var eftir það. En svo verður maður náttúrulega að viðhalda því.“
En er mikill munur á að leika fyrir hvíta tjaldið og á sviði?
„Já. Í fyrsta lagi snýr þetta að orkunni. Þú notar miklu meiri orku á sviðinu og þarft að leika fyrir aftan síðasta áhorfanda í salnum. Þar kemur til dæmis raddbeitingin mjög mikið til skjalanna. Það tók mig tvö ár að geta talað, nú geri ég svona gæsalappir með fingrunum, „eðlilega“, á stóra sviðinu án þess að maður sé að rembast. Það þarf reynslu í þetta nefnilega. Og ég sé til dæmis núna hverjir eru að ná þessu sem eru nýútskrifaðir sko og hafa verið að leika í eitt, tvö ár.“
Þetta er svo allt önnur saga fyrir framan kvikmyndatökuvélarnar?
„Já. Annars er það mín skoðun að við höfum muldrað allt of lengi. Já, mér finnst að það þurfi orku í leiklistina. Annars verður þetta hálfdautt einhvern veginn.“
Lolla segist hafa pælt talsvert í þessu fyrirbæri og nefnir Dani sem eru góðir í þessu og svo Norðmenn.
„Þeir eru ekkert að reyna að gera þetta sem eðlilegast þannig að það sé eiginlega bara dautt heldur setja þeir orku í þetta. Eins og þegar ég tala við þig, hér og nú, þá talar maður skýrt og talar með orku. Ekki bara eitthvað,“ segir Lolla og fer að muldra. Og orð hennar ná ekki flugi.
„Eins og ef við værum að tala inni í eldhúsi. Munnurinn hreyfist varla. Ég heyri ekki hvað leikararnir segja. En þetta kann að vera af því að ég er farin að heyra illa. Ég heyri ekki hvað leikararnir segja.“
Mikill misskilningur að menn eigi að muldra
Þetta er athyglisvert. Þegar Friðrik Þór Friðriksson og þetta íslenska bíó er að verða til þá forðuðust leikstjórar það beinlínis að fá lærða og vana leikara í hlutverkin. Þeir þóttu of óraunverulegir.
„Þetta er svo mikill misskilningur. Ef þú tekur bara einhvern af götunni og ætlar að láta hann leika þá er hann miklu óeðlilegri en leikari sem kann að leika. En hann á að geta stillt sig þannig að hann sé trúverðugur fyrir myndavélina.“
Lolla byrjar að muldra og segir svo:
„Þetta er svo leiðinlegt.“
Þú færð fljótlega hlutverk í Perlum og svínum sem Óskar Jónasson gerir. Það er mjög eftirminnileg mynd og eftirminnileg frammistaða þín þar.
„Það var voðalega skemmtilegt að leika í þessari mynd og gaman að vera hjá Óskari. Já, þetta var svona sæt mynd.“
Og frekar súr, Óskar var vitaskuld að vinna með súrrealismann svona öðrum þræði?
„Já, einmitt. Og en núna í dag þá er þetta ekki neitt sláandi. Þetta með söluvarninginn. Af því hann var dónalegur. En ég man að þegar ég sá bíómyndina hugsaði ég: Úúú, má þetta bara?“
Lolla rifjar upp nokkur hlutverk sín úr kvikmyndasögunni og segist svo elska Kristínu Jóhannesdóttur leikstjóra.
„Bara besti leikstjóri allra tíma. Það er bara þannig. Hún skilur mig.“
Var hún ekki að berjast fyrir því að konur væru metnar til jafns við karlana í þessu öllu saman?
„Akkúrat,“ segir Lolla og rifjar upp þegar hún og Halldóra Geirharðsdóttir voru að myndast við að skrifa kvikmyndahandrit um persónurnar Hannes og Smára.
„Og við skiluðum einu handriti og það endaði með alls konar athugasemdum. Við vorum til í að gera allt sem þau voru að biðja okkur um þarna hjá Kvikmyndasjóði. Þetta gekk svona fram og til baka. Svo endaði það með því að þau sögðu: „Heyrðu, viljið þið ekki bara fá einhvern til þess að skrifa þetta fyrir ykkur?“ Og við vorum líka til í það. Bara fá að gera þetta. En það var ekki einu sinni nóg. Hvað var þetta?“
Ég skal ekki segja.
„Maður spyr sig.“
En það er ekki bara það að þú hafir náð að skipta þér jöfnum höndum milli dramatíkur og kómíkur og svo sviðsins og hvíta tjaldsins, heldur ertu líka að samhliða öllu þessu að föndra við tónlist?
„Já, ég elska að vera í tónlist.“
Já. Hefur það alltaf verið?
„Já.“
Taldi píanókaup of dýr fyrir pabba sinn
Tónlistarferillinn hefur sem sagt ekki byrjað í Kvengítarskóla Atla Geirs? (Lolla hlær.)
„Nei. Ég var í hljómsveit í Fossvoginum þegar ég var sjö, átta ára og spilaði á badmintonspaða. Og var söngkona líka. Og svo á Hornafirði var ég söngkona í hljómsveitinni Njálu. Mig langaði að læra á píanó en ég var svo stressuð að biðja pabba um að kaupa píanó af því að hann var alltaf að býsnast yfir reikningunum. Svo ég hugsaði: Þetta er örugglega of dýrt fyrir hann. Hann var sko útibússtjóri í Landsbankanum.“
Hann hefði nú átt að hafa efni á því að geta keypt einn píanóræfil fyrir stelpuna.
„Já, en ég spurði ekki. Ég bað um gítar og fékk gítar þegar ég var 12 ára. Ég man þegar ég samdi fyrsta lagið. Þetta var bara eins og að ganga inn í nýja veröld fyrir mig. Og satt best að segja hef ég samið alveg ógrynni af lögum. Svo var ég á Hótel Sögu að leika þar í Er það satt sem þeir segja um landann? með Ladda og Halla og Hjálmari Hjálmars? Og þar var Þórir Baldursson.“
Sá mikli snillingur.
„Þvílíkur snillingur. Honum fannst ég ofboðslega skemmtileg og það var gaman að sjá hvað honum fannst ég skemmtileg. Svo fer ég til hans og voga mér að segja við hann: „Mig langar að syngja djass.“ Ég var alveg viss um að ég gæti það.
Og þá kemur hann mér í samband við Tómas R. Já, og við fórum að hittast, ég og Tómas R. Og ég segi við Tómas: „Ég held að ég gæti samið djasslög.“ Og hann bara: „Jahá.“ Ég fór að mæta heim til hans á morgnana og kom með einhverja lagasmíð sem hann breytti svo í gull, eða þannig. Ég kom með einhverja eina laglínu og hann gerði flotta hljóma þar við. Þetta var alveg dásamlegt samstarf. Þetta hefur verið um 1994 eða þar um bil.“
Og þið gerðuð eina plötu.
„Já. Mér þótti það svakalega gaman. Þá áður hafði ég verið í Hljómsveit Jarþrúðar, sem var kvennahljómsveit. Ég, Lana Kolbrún úr útvarpinu, Lilja Steingríms, hjúkrunarfræðingur og Þórdís Claessen, trommuleikari, að ógleymdri Guðrúnu Jarþrúði en hljómsveitin hét eftir henni. Þarna var verið að semja og semja og spila og spila. Þegar ég hlusta á þetta í dag hugsaði ég með mér: Heyrðu, þetta var nú bara helvíti gott. Við gáfum út nokkur lög og bara núna nýlega tókum við upp tvö lög. Sumar okkar hafa geymt þetta efni á spólum. Þetta er algjört rarítet.“
Heimspekin á bak við Heimilistóna
Svo eru náttúrulega hinir heimsfrægu Heimilistónar.
„Já, og við erum enn að. Stundum erum við með frumsamið en oftast er þetta erlent skallapopp sem við þýðum yfir á íslensku, sem er skemmtilegt. Við munum aldrei hætta.“
Heimilistónar fóru með himinskautum og voru til að mynda óborganlegir í fyrstu Iceguys-þáttaröðinni. Þið eruð alltaf uppstrílaðar?
„Sko, þegar við vorum að búa þessa hljómsveit til var hugsunin sú að spila músíkina sem hljómaði í útvarpinu þegar við vorum litlar. Þá var hins vegar kvenmaðurinn staddur á allt öðrum stað. Hann fór ekkert út úr húsi til að stofna hljómsveit. Sú pæling fannst okkur skemmtileg. Og svo að vera klæddar í takt við þann tíma. En vera komnar með miklu meira frelsi.“
Og þið létuð til ykkar taka í Eurovision?
„Einmitt. Við vorum búnar að spila í fjöldamörg ár og enginn vissi hver við vorum þar til við fórum í Eurovision.“
Fólk verður fyrst heimsfrægt á Íslandi þegar það fer í Eurovision, það er bara þannig.
„Já, það er bara þannig.“
Saknarðu Eurovision?
„Nei, en mér líst rosalega vel á að þetta verði svona landshlutasöngvakeppni eða sýslukeppni. Það er mér æðisleg hugmynd.“
Það eru auðvitað voðalega miklir flokkadrættir í svona söngvakeppni og þar skiptir landsbyggðin öllu þegar við erum að kjósa á milli laga.
„Já, er það ekki? Einmitt. Nei, kannski fer allt í bál og brand ef við gerum þetta bara á Íslandi og á milli landshluta, ég veit það ekki. Þetta er kannski ekki góð hugmynd?“
Veðjað á unga fólkið
Lolla veltir þessu fyrir sér, fram og til baka. Nú eru hagir hennar í leikhúsinu að breytast.
„Ég er fyrsta leikkonan sem er að fara í 50 prósenta starf. Það hefur aldrei verið gert fyrr. Ég er á 95 ára reglunni sem er starfsaldur plús lífaldur. Ég hefði mátt hætta fyrr. Mig minnir að Magnús Geir hafi stungið upp á þessu, ekki fyrir mig heldur bara svona almennt, en hann kannast ekki við það núna eða hann man ekki eftir því. En ég veit ekki hvernig mér hefði átt að detta þetta í hug en þetta kemur náttúrulega alveg rosalega vel út. Bæði þá fæ ég meira frelsi og þetta er ódýrara fyrir Þjóðleikhúsið. Það skipti náttúrulega öllu máli.“
Nú hefur maður heyrt í gegnum tíðina leikkonur kvarta undan því að það sé ekki nokkur vinnandi vegur að eldast í þessu fagi einfaldlega vegna þess að það séu svo miklu færri hlutverk skrifuð fyrir eldri konur, inn í leikbókmenntirnar?
„Já. Við erum bara örfáar hræður sem eru þarna yfir sextugt, sko. Það væri ekkert mál að finna eitthvað bitastætt fyrir okkur. Þetta eru hvað; ég, Örn, Pálmi og Edda Arnljóts. Erum við ekki bara fjögur? Já og Þröstur? Já. En eins og einhver sagði við setningu Þjóðleikhússins, þegar var verið að kynna verkefnavalið fyrir næsta leikár, þá sagði Magnús Geir að það ætti að veðja á unga fólkið.“
Veðja á unga fólkið? En þannig hefur þetta alltaf verið?
„Nákvæmlega. Er það eitthvað nýtt? Mér fannst þetta spaugilegt. Og ég hugsaði bara: Bíddu, er ekki búið að vera að gera það alltaf? Ég skildi ekki af hverju þurfti að taka þetta fram sérstaklega. En jú, vissulega dettur þetta niður þegar maður eldist. Hvað á ég að segja?“
Leikhússtjórar eru afar mismunandi
Lolla segir að af því að hún er að fara í fimmtíu prósenta starfshlutfall hafi hún átt að velja hvort hún vildi vera fyrir eða eftir áramót.
„Ég var spennt, einmitt með hvað leikhússtjórinn myndi setja upp fyrir mig. Ef ég veldi fyrir áramót þá var það Ormstunga áfram og Lína langsokkur. Eða að æfa upp tvö ný eftir áramót. Og mér finnst leikhópurinn í Ormstungu yndislegur sem eru náttúrulega bara eiginlega allir leikararnir í Þjóðleikhúsinu þannig séð, nema nokkrir.
En þessi samsetning er óskaplega skemmtileg. Svo er það auðvitað hreinn og klár hégómi vegna þess að húrrahrópin þegar ég er búin með mitt atriði eru svo mikil. Mér finnst gaman að heyra það. Það er kikk.“
Er það ekki svolítið það sem heldur fólki við efnið, það eru húrrahrópin og klappið?
„Pældu í því. Mig langaði ekki að fara út úr Ormstungu þannig að ég var ekki látin æfa neitt nýtt upp. En ég hef alveg verið til í það. Ég bað reyndar um að fá að vera í einu leikriti sem fór upp núna í haust en þá var einmitt svarið: Ég var of gömul. Þetta er náttúrulega eins og blaut tuska. Og ég bara eiginlega trúi því ekki. Ég tek ekki mark á þessu. En það er skrýtið að heyra þetta, þú veist: Þú ert bara of gömul. Hefur þú fengið að heyra svona?“
„Nei, ég er svo unglegur, fólk er reyndar alltaf að tala um það hvað ég sé rosalega flottur.
„Finnst þér ég ellileg?“
Nei, nei, ég er ekki að segja það. Sko, ég hérna, nei, þetta kemur ekkert voðalega mikið upp hvað mig varðar.
„Nei, ég veit það. En pældu í því ef þú myndir heyra þetta reglulega. Þú í mynd að taka viðtal við fólk og svo er sagt: „Þú ert of gamall.““
Ég hef reyndar oft fengið að heyra það að ég hafi andlit fyrir útvarp, að ég sé ekki nógu fríður til að vera í mynd. Ég náttúrulega tek því eins og hverju öðru hundsbiti.
„Nei, þetta er bara eins og grín.“
En, sko, ég er að velta fyrir mér með leikhússtjórana, hver myndi vera svona þinn eftirlætis- leikhússtjóri sem þú hefur unnið með? Þú hefur væntanlega unnið með mörgum þeirra. Þú nefndir Stefán Baldursson hér fyrr.
„Já, hann var náttúrulega minn fyrsti. Hann bauð mér fastráðningu. Svo kom Tinna Gunnlaugsdóttir á eftir honum. Svo kom Ari Matthíasson. Og svo kom Magnús Geir Þórðarson. Og þetta eru plúsar og mínusar.“
En skipta þeir miklu máli, leikhússtjórarnir, fyrir ykkur leikarana?
„Þeir skipta mismiklu máli. Sumir leikhússtjórar vilja hafa puttana í öllu, bara hver leikur hvað og eru mjög ákveðnir í því hvernig þeir raða í verkefnin. Svo eru dæmi um leikhússtjóra sem leyfir leikstjóranum svo miklu meira að ráða. En allt verður þetta líka að ganga upp og þetta er mikið púsluspil. Þú verður að hugsa um alla leikarana sem eru í húsinu og það gengur þeim misvel að gera. Og halda bara með sínu fólki og eru ekkert að hlúa að sumum leikurum, sem mér finnst rosalega bagalegt.“
Lolla lærir að googla
Þegar ég hugsa um þig og þinn feril, og þú nefndir að þú hefðir alist upp á Hornafirði, finnst mér þú alltaf vera öðrum þræði landsbyggðartútta.
„Er það?“
Já.
„Já?“
Af hverju finnst mér þetta?
„Nú verður þú að útskýra.“
Þú ert til að mynda með annan fótinn á Siglufirði.
„Jú.“
Þar hefurðu byggt þér annað heimili?
„Jájá.“
Hvernig á ég að forma spurninguna? (Hér er spyrillinn enn og aftur kominn í vandræði.) Er þetta alveg úr lausu lofti gripið hjá mér?
„Nei.“
Mér finnst eins og þú sért að forðast sollinn. Þú viljir ekkert síður búa á landsbyggðinni heldur en vera hér í Reykjavík. Er það algjörlega úr vegi?
„Nei, alls ekki. Sko, þegar ég flutti til Hornafjarðar þá einhvern veginn breyttist Lolla. Lolla fann sig svolítið. Á Höfn vorum við í sjö ár. Svo vorum við tvö ár á Eskifirði. En þau ár var ég mest á Laugarvatni. Ég held að það gefi leikaranum mjög mikið að koma frá litlu plássi þar sem þú sérð alla flóruna. Í Reykjavík ertu svo mikið með þínum líkum. Þú kynnist ekki öllum hinum. Á Hornafirði kynntist maður lífinu alveg bara frá A til Ö. Maður vissi alveg hvernig var heima hjá þessum og það var kannski svolítið skrýtið. Og svo náttúrulega allur kjaftagangurinn. Það eru plúsar og mínusar sem þessu fylgja. Þegar ég kom til Siglufjarðar þá hafði ég komið þangað nokkrum sinnum. Ég féll algjörlega fyrir þessum bæ og ég hafði alltaf hugsað: Mikið væri gaman að eiga hús hérna? Mér fannst einhvern veginn svo sniðugt hvernig húsin voru bara í rugli uppi í hlíðinni. Svo alveg rúðustrikuð á Eyrinni. Og svo keypti ég hús þarna með vinkonu minni 2010.“
Hvernig kom það til?
„Ég er sem sagt að tala um hversu gaman væri að kaupa hús á Sigló og hún segir: Já, ég skal kaupa með þér. Þetta er alveg ótrúleg saga. Ég fer að gúggla í fyrsta skipti á ævinni. Ég er ekki mikil svona tölvu-eitthvað. Alltaf svolítið sein til með það. En ég fer að gúggla hús úti á landi. Og ég veit ekki hvernig það atvikaðist, það gerðist bara í tölvunni að það komu upp hús af öllu landinu og þau voru í stafrófsröð. Eitt af fyrstu húsunum sem upp komu var Eyrargata 2 sem ég á svo í dag.“
Æsispennandi fasteignakaup
Vinkona Lollu sagði að mikið væri nú gaman að skoða þetta hús nánar.
„Og við erum bara komnar korteri seinna að skoða húsið. Og svo förum við út á stétt og þá segir vinkona mín: Mikið væri gaman að skoða teikningar af þessu húsi. Og þá er bara hann Hreinn, sem vinnur í ráðhúsinu og sér um teikningar, hinum megin á stéttinni.
Við fórum bara upp í ráðhús og skoðuðum teikningar. Ég veit nú ekki til hvers, það þótti svona það ábyrgðarfulla að gera það. En ég vissi aldrei til hvers. Og svo buðum við í húsið á leiðinni heim, á Blönduósi. Þar var fasteignasalinn. Og við fórum í kaffi til kvenna á Siglufirði og alltaf lækkaði verðið. Við áttum að bjóða í og eins og ég man söguna þá sagði ég: Heyrðu, ég er með töluna. Þetta er bara 2,2.“
Þetta er 2010.
„Það er langt síðan. Þetta var sko áður en göngin voru opnuð. Þannig að við vorum á réttum stað á réttum tíma.“
Ertu yfirleitt svolítið heppinn í svona fasteignakaupum?
„Hvað á ég að segja?“
Þetta hefur væntanlega hækkað verulega í verði?
„Aðeins, já.“
Finnst notalegt að vera í litlu bæjarfélagi
Lolla fer gjarnan í húsið sitt á sumrin og hún sér nú fram á aukinn tíma. Þú virðist finna þig miklu betur á landsbyggðinni?
„Það er öðruvísi, já. Mér finnst alveg rosalega notalegt að vera í svona litlu bæjarfélagi. Þú ferð bara út á götu, þú hittir alltaf einhvern og alltaf einhver að spjalla. Það er einhvern veginn skrýtnara að fara einn út hér í Reykjavík, finnst mér. En ertu sammála því?“
Jahh.
„Ert þú landsbyggðartútta? Myndirðu segja það, úr Hafnarfirði?“
Já. Ég er reyndar líka ættaður af Jökuldalnum og þangað er svolítið langt að fara.
„En þú hefur ekki búið þar?“
Ég var alltaf þarna í, já, í sveit á sumrin og svo var ég nú þarna einn vetur, kenndi, var kennari við Brúarásskóla. Það tíðkaðist á árum áður, þegar maður hafði lokið menntaskóla, að fara út á land að kenna.
„Já, einmitt. Þannig var það líka með Margréti Einarsdóttur heitna. Hún var svona, fór út á land að kenna. En ert þú landsbyggðartútta, myndirðu segja?“
Ég er nú eiginlega vanari því að spyrja spurninganna fremur en svara þeim.
„Ég ætlaði einmitt að segja þér að mikið af fólki utan af landi sem ákveður að flytja til höfuðborgarsvæðisins endar í Hafnarfirði, sem fólki finnst miklu mýkri lending en að fara til Reykjavíkur.“
Að vera, eða vera ekki í barnaleikritum
Lolla sló í gegn í Kardemommubænum, þar sem hún lék Soffíu frænku og sópaði að henni. Og hún var í Línu langsokk. Hún segir þetta búið með barnaleikritin, hvað sig varði.
„Þetta var þannig í gamla daga að hlé var gert milli barnasýninga. Og þeim var skipt niður á leikhópinn. Það er ekki draumastarfið að leika í barnaleikriti þegar þú ert fastráðinn í Þjóðleikhúsinu.
Ég hef alltaf litið þannig á að við skiptum þessu á milli okkar. Óskrifuð regla. Við tökum ábyrgð með því. Nú hefur mér til dæmis boðist að leika í fimm barnasýningum í röð!“
Útheimtir það annað og meira af leikaranum að vera í barnaleiksýningu?
„Nei, þetta er bara vinnutíminn. Þú ferð inn á laugardagsmorgni og kemur út á sunnudagskvöldi. Þetta er ófjölskylduvænt og allt of löng viðvera að vera bundin allar helgar.“
En þetta eru náttúrulega eftirminnilegustu hlutverk margra leikara: Árni Tryggva og Bessi Bjarna sem Lilli klifurmús og Mikki refur?
„Já, fyrir þig sem barn er þetta eftirminnilegast. Ekki fyrir fullorðna manneskju.“
Og nú ertu farin að horfa til þess að þess að geta sest í helgan stein eða hvað?
„Ég verð í fimm ár í þessu 50 prósenta starfi og svo er ég hætt. Það er skrýtið að vera kominn á þennan stað.“
Konur á miðjum aldri gera pönk
Þegar við horfum yfir sviðið er ekki hægt annað en segja að þetta hafi verið afar farsælan feril?
„Já. Ég lít þannig á. Ég hef verið heppin með hlutverk í gegnum árin. Þetta er mikil breidd. Og ég hef bara aldrei beðið um eitt eða neitt af því mér hefur aldrei fundist ég þurfa það. Þetta er eiginlega bara, ég held það sé fyrsta núna sem ég bað um núna á þessu hausti til þess að æfa upp eitthvað nýtt, það nærir mann. Ég er ánægð með ferilinn og svo náttúrulega tónlistina líka.“
Lolla vendir þá kvæði sínu í kross einu sinni sem oftar.
„Ég má ekki gleyma að nefna Gertrude and the Flowers. Hefurðu heyrt í henni? Þú skalt fara á Spotify og hlusta á hana. Konur á miðjum aldri að gera pönk. Öskra. Ég skil ekki af hverju við fengum ekki meiri athygli og af hverju við vorum ekki beðnar um að koma hingað og þangað. Þetta er alveg einstakt.“
Hvenær var þetta?
„Þetta er bara fyrir nokkrum árum. Við vorum starfandi í þrjú ár og vorum alltaf að reyna að troða okkur að en það vildi enginn sjá okkur. Bara sagt að þetta væru gamlar kellingar að spila eitthvað rokk.“
Hvers konar vanþakklæti er þetta?
„Það er meiri spenna fyrir unga fólkinu, eðlilega. En mér finnst samt þetta vera pínu hugsanavilla, þú veist. Og eins og til dæmis getum við svo mikið lært af vinum okkar sem eru kynnar í Eurovision. Þar eru engar stúlkur sem ættu að geta keppt í fegurðarsamkeppni, heldur bara gamlir loðnir karlar. Þetta er spurning um persónuleikann sem ætti að vera að leita að en ekki útlitið sem ræður.“
Afgreiðslustúlkan hugsaði sig ekki um eina sekúndu
Við erum kannski svona með fyrstu kynslóðunum sem eru að eldast með þessari unglingamenningu sem varð til með 68 kynslóðinni. Mick Jagger er enn að en þegar hann var ungur sá hann ekkert fyrir sér að eldast í þessu. Það sá enginn, enda tíðkaðist það ekki.
„Það er pínulítið öðruvísi með karlana. Ég man þegar Tina Turner var sextug og allir bara: „Ó, mæ god, hún er bara ennþá gamla kerlingin í, þarna, fullu fjöri.“
En voru ekki allir sem tóku henni bara fagnandi?
„Jú, jú, en samt voru allir bara svona: Vá, hvernig getur hún gert þetta svona eldgömul? Ég er orðin fjórum árum eldri en hún var þá. Og enn í Heimilistónum.“
Við höfnum öllum aldursfordómum! Við ættum kannski að skrá okkur í Gráa herinn, er ekki kominn tími á það? Eða Félag eldri borgara.
„Ert þú þar?“
Nei, reyndar ekki. En ég þarf að fara að athuga með þetta.
„Ég skráði mig en er ekki búin að borga félagsgjaldið.“
Nú, þar fór í verra.
„Ég notaði þetta samt einu sinni. Þá var ég í ísbúð með barnabarninu mínu og þar var svona miði, afsláttur fyrir eldri borgara. Barnabarnið mitt benti mér á þetta og vildi að ég notaði afsláttinn. Ég sagði: „Heyrðu já, og ég er eldri borgari.“ Afgreiðslustúlkan hugsaði sig ekki um eina sekúndu. Henni fannst ekkert eðlilegra, sem mér fannst ekki góðar fréttir.