„Þetta er grófari og blúskenndari útgáfa af upprunalega laginu sem við höfum verið að leika okkur með í mörg ár. Ég er mjög ánægður að við skyldum loksins fá tækifæri til að taka hana upp,“ segir söngvarinn Jökull Júlíusson um nýjustu smáskífu Kaleo, Still No Good, sem kemur út í dag.
Smáskífan kemur út í tilefni af væntanlegu 10 ára afmæli fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar. A/B.
„Fyrir tæpum tíu árum gáfum við út plötu sem breytti lífi okkar til frambúðar,“ segir Jökull og bætir við: „Til að fagna 10 ára afmælinu gefum við út EP-plötu á öllum streymisveitum þann 12. júní, sem inniheldur sjaldgæfar stúdíóupptökur og nokkrar af okkar eftirminnilegustu tónleikaupptökum.“
Frumraunin A/B inniheldur vinsæl lög á borð við All The Pretty Girls, No Good og Way Down We Go, sem fór í fyrsta sæti Billboard Alternative Rock-listans og hefur verið streymt nærri 4 milljarða sinnum og verið notað í yfir 3 milljónum TikTok-myndbanda um allan heim.
Kaleo verður með tónleika á Þingvöllum 20. júní.
„Það er okkur mikill heiður að fá að deila þessari upplifun með 20.000 Íslendingum, frábæru listamönnunum sem koma fram og öllum sem vilja fagna með okkur á Þingvöllum,“ segir hann.