Fyrirtækið Hegri fjárfestingar þarf að endurgreiða þrotabúi Bílaleigu Reykjavíkur rúmar 53 milljónir króna vegna greiðslna sem áttu sér stað í aðdraganda gjaldþrots. Bílaleigan þótti á þessum tíma ógjaldfær, glímdi við verulega fjárhagserfiðleika, var stórskuldug og í vanskilum við fjölmarga kröfuhafa. Greiðslurnar voru sagðar tengjast láni sem bílaleigan tók hjá fjárfestingafélaginu, en í þeim viðskiptum reyndist sami maðurinn sitja beggja vegna borðsins.Bílaleiga Reykjavíkur var tekin til gjaldþrotaskipta að beiðni stjórnar félagsins í maí árið 2024.
Þarf að endurgreiða þrotabúi 53,2 milljónir eftir að eigandinn sat „beggja megin borðsins“