„Það að maður sé að sýna einhverjar leiksýningar sem maður hélt að væru það mikilvægasta í sínu lífi fer svo aftarlega í goggunarröðina að það hálfa væri feikilega helmingi of mikið,“ segir leikarinn og tónlistarmaðurinn Kristinn Óli Haraldsson, eða Króli, í Dagmálum Morgunblaðsins.
Í blálok ársins 2025 eignaðist Króli sitt fyrsta barn með unnustu sinni Birtu Ásmundsdóttur. Hann segir mikið hafa verið um að vera þegar barnið kom í heiminn.
Pabbasamviskubitið sterkt
„Þegar Össur fæðist þá er mánuður í frumsýningu á Ormstungu, síðan er ég að sýna Línu Langsokk á meðan líka og var nýbúinn að leikstýra uppi í Versló og við vorum nýbúin að flytja,“ segir Króli.
„Þannig að pabbasamviskubitið er alveg helvíti sterkt og það væri stærra ef ekki væri fyrir elsku Birtu sem er búin að standa sig eins og ofurhetja og hefur verið algjör klettur.“
Brosmildasta og hressasta barn heims
Hann segir frá því þegar hann var að æfa fyrir tvær sýningar samtímis frá klukkan 10 á morgnana til miðnættis. Hann hafi því lítið sem ekkert séð fjölskylduna í um þrjár vikur.
„Það var erfiðasti tími lífs míns, jörðin svolítið svona hvarf og maður hafði aldrei neina fótfestu,“ segir hann.
Hann segir þó allt hafa gengið mjög vel undanfarna mánuði. „Lífið er frábært og öllum heilsast vel, hann er bromildasta og hressasta barn í heiminum.“
