Ísak Hafþórsson er 25 ára strákur úr Hafnarfirði sem passaði aldrei inn í boxin sem skólakerfið og samfélagið ætlaðist til af honum. Hann er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.Ísak var vel virkur sem krakki og þurfti mikla útrás. Hann æfði fótbolta framan af en passaði aldrei inn í hópinn.Skólagangan gekk ekki vel, að sögn Ísaks, hann lenti í einelti af hendi samnemenda og kennara. Honum gekk ekki nógu vel í námi enda leið honum illa en ef hann hafði áhuga á einhverju gat hann einbeitt sér að því og þá gekk vel.
„Það kom upp að mér 16 ára strákur og bauð mér að kaupa fíkniefni. Ég sá sjálfan mig svo í honum”