„Það færist skuggi yfir mann­eskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ - Vísir

„Það færist skuggi yfir mann­eskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ - Vísir

„Það færist skuggi yfir mann­eskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ - Vísir

Ingi Björn og Tinna kynntust í gegnum netið árið 2005 á afmælisdegi hennar og voru saman í um tuttugu ár áður en hún féll frá. Sindri Sindrason ræddi við Inga Björn Sigurðsson í Íslandi í dag um krabbameinsgreiningu Tinnu, andlát hennar og það sem tók við í kjölfarið.

„Við vorum saman í tæp tuttugu ár og áttum rosalega fallegt líf. Ég átti barn áður sem hún ættleiddi og saman áttum við þrjú börn, sú yngsta er sjö ára, næsta fjórtán, svo sautján og sú elsta er 22 ára þannig þau eru á öllum aldri,“ segir Ingi Björn.

Þau áttu fallegt líf saman og óraði ekki fyrir því að neitt yrði öðruvísi en að þau myndu eldast saman. En þeim var ætlað að takast á við eitthvað allt annað.

„Greiningartímabilið var náttúrulega algjört helvíti“

„Tinna fer út í göngutúr, finnur til og fer til unglæknis sem sendir hana í myndatöku. Hún ætlaði ekki að nenna í myndatöku en fór og niðurstöðurnar voru að hún greindist með krabbamein í skeifugörn sem hafði í rauninni farið út í lifur og lungu, fjórða stigs krabbamein,“ segir Ingibjörn.

Greiningin var mikið áfall fyrir fjölskylduna og tóku erfiðir mánuðir við.

Ingi Björn og Tinna Hrund voru saman í tæp tuttugu ár og áttu fallegt líf saman þangað til hún féll frá árið 2025.

„Hún lifði í átján mánuði frá því hún var greind og greiningartímabilið var náttúrulega algjört helvíti. Sjokkið var svo mikið og það að ungt fólk greinist í blóma lífsins, það er fátt sem er erfiðara,“ segir Ingi Björn.

Fjölskyldan vissi ekki hvað hún hafði glímt lengi við krabbameinið og hrein hending að það skyldi uppgötvast.

„Það sem var upprunalega að henni, þar sem hún fann til, það jafnaði sig og hafði ekkert með krabbameinið að gera. Krabbameinið fannst gjörsamlega óvart,“ segir hann.

„Þá vissi ég að það væri ekki neitt kraftaverk á leiðinni“

„Tinna var ótrúleg kona og í rauninni grétum við kannski í tvo daga saman. Svo reis Tinna upp og sagði: „Jæja, fyrst að þetta er svona þá er þetta verkefni og þetta er verkefni sem við ætlum að nálgast eins og hvert annað verkefni. Við ætlum að takast á við þetta.“,“ segir Ingi um Tinnu.

„Tinna lifði með voninni allan tímann, hún hafði von um að læknast, að krabbameinið stæði í stað og að geta átt sem eðlilegast líf með krabbameininu. Hennar verkefni frá degi tvö eða þrjú var bara að helga sig að batanum.“

Á endanum varð þó ljóst að Tinna myndi ekki ná bata.

„Það kom í ljós 2024 að krabbameinið hefði skotist upp í heila og þá vissi ég að það væri ekki neitt kraftaverk á leiðinni. Þá vissi ég að það væru mánuðir en ekki ár, því ég var búinn að lesa of mikið,“ segir Ingi Björn.

Tinna lifði í átján mánuði eftir greininguna.

„Mig grunaði samt ekki hvað þetta myndi gerast hratt. Þetta er svakaleg lífsreynsla að finna þegar krabbameinið tekur yfir, það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu. Og hún fékk að deyja fallega,“ segir Ingi.

Tinna lést á líknardeildinni í Kópavogi og var Ingi hjá henni þegar hún fór. Næstu dagar og mánuðir eftir það voru krefjandi og þurfti Ingi að fara í mikla sjálfsleit til að finna út hver hann væri.

„Þetta er algjör tilfinningarússíbani. Ég þurfti bara að finna út hver ég væri, ekki nóg með að ég væri miðaldra þá vissi ég ekki einu sinni hvað mér fannst gott að borða, hún sá um matinn, og ég þurfti að læra að umgangast börnin mín upp á nýtt,“ segir hann. 

„Ég fór í mikla sjálfsleit og vinnu til að átta mig á því hver ég væri. Ég vissi að ef ég vissi ekki hver ég væri, hver mín gildi væru og hvernig ég ætlaði að haga lífinu, gæti ég ekki hjálpað börnunum að takast á við lífið.“

Þurfti að banka á hverjar einustu dyr

Þegar einhver nákominn deyr þarf að huga að meiru en bara fólkinu sínu. Kerfið sem taki við aðstandendum sé ekki auðvelt að eiga við.

„Í fyrsta lagi var þetta algjörlega nýtt fyrir mig, ég hef ekki misst neinn það nákominn að ég þyrfti að standa í þessu. Maður var rosalega einmana og á líknardeildinni, sem er líklega besti staður sem enginn vill vera á, fékk ég bækling um réttindi eftirlifenda,“ segir Ingi.

Tinna helgaði sig bata frá krabbameininu.

Hann hafi farið markvisst yfir bæklinginn og þurfti sömuleiðis að fara yfir öll fjármál heimilisins, því Tinna hafði séð um þau verkefni. 

„Þetta tók brjálaðan tíma, í fyrsta lagi að vita hver réttindi mín voru, ég þurfti að banka á hverjar einustu dyr, stundum oftar en einu sinni og stundum oftar en tvisvar,“ segir hann.

Hann þurfti að leita til alls konar stofnana.

„Ég þurfti að banka upp hjá öllum tryggingafélögum, öllum lífeyrissjóðum og stéttarfélögum því Tinna hafði unnið á mörgum stöðum. Ég þurfti að fá launseðil frá vinnuveitanda til þess að átta mig á því hvar hlutirnir væru,“ segir hann.

Þjóðþrifamál að létta undir með aðstandendum

Bankareikningar Tinnu lokuðust um leið og þurfti Ingi því að leita til ólíkra banka, fá prókúru hjá fyrirtæki Tinnu og aðgang að bókhaldi þess. Hann hefði ekkert leitt hugann að þessu meðan veikindin stóðu yfir.

„Ég vildi njóta seinustu daganna og njóta þess að vera með henni. Þetta var verkefnið mitt og þetta verkefni tók tíma. Ég hugsaði með mér hvort allir þyrftu að ganga í gegnum þetta,“ segir hann.

Hann hafi verið mjög hugsi yfir þessu og að það skuli hafa tekið fimmtán mánuði að ganga frá málum hennar, þrátt fyrir að tilfellið væri ein einfaldasta útgáfan af óskiptu búi. 

„Notendaviðmót fyrir aðstandendur er ekki til staðar og er ekkert mál að búa til. Það þarf bara að taka ákvörðun um það að létta aðstandendum og það er þjóðþrifamál. Að meðaltali deyja sjö einstaklingar á dag á Íslandi og verða til við það jafnmörg dánarbú. Kerfið í kringum þetta þarf að einfalda og gera betur,“ segir Ingi.

Ábyrgðin sett á sjúkling og síðan aðstandendur

Verkefni Inga hafi verið að fóta sig í nýjum raunveruleika og ekki einfalt að þurfa að eiga við þessi mál ofan á allt annað. „Það er nóg að díla við börnin, sína eigin sorg og krísur.“

Óvissan var endalaus og erfitt að þurfa að fá bakreikninga í kjölfarið.

„Ég er alveg borgunarmaður fyrir þessum bakreikningi en ég hefði hugsað sumarfríið öðruvísi. Ég fékk í rauninni tvo bakreikninga, annan frá Skattinum og hinn Tryggingastofnun,“ segir Ingi.

Ingi Björn segir að breyta verði kerfinu.

„Tryggingastofnun hafði ofgreitt henni sjúkrabætur en þær eru ákvarðaðar út frá áætlun sem sjúklingurinn gerir sjálfur og ég hafði ekki hugmynd um. Í rauninni er ótrúlegt að sjúklingarnir þurfi sjálfir að búa til áætlanir þegar staðreyndirnar um hvað þau fá eru til staðar í kerfinu,“ segir hann.

Sjá einnig: Líkir Trygginga­stofnun við hand­rukkara

Tinna hefði fengið sjúkrapeninga frá stéttarfélaginu og hefði Tryggingastofnun getað samþætt það þannig að hún vissi hvað hún fengi frá stéttarfélaginu gagnvart þeim greiðslum sem hún fékk.

„Þess í stað, þetta annað ár sem hún var veik, þurftu þeir að láta ábyrgðina vera hjá sjúklingnum sem færist svo yfir á aðstandendur. Þetta er galið fyrirkomulag og þessu þurfum við að breyta,“ segir Ingi.

Kallar eftir umboðsmanni aðstandenda

Ingi segir að lífið átján mánuðum eftir andlátið sé gott og fjölskyldumeðlimirnir takist á við áfallið hver á sinn hátt.

„Ég er búinn að vera lifandi rosamikið í núinu, bara einn dag í einu, eina viku í einu, einn viðburð í einu og svo framvegis. Ég er búinn að vera mjög nærsýnn í minni eigin nálgun og það er rosalega frelsandi. Það eru engar áhyggjur og eftirsjá í núinu. Við lifðum rosalega fallegu lífi og ég er þakklátur fyrir lífið sem við lifðum,“ segir Ingi.

Þau hafi þó fengið þessa átján mánuði saman.

Ingi Björn með börnum sínum fjórum.

„Alltaf þegar mér er kippt niður á jörðina hugsa ég um sárin við það að missa án fyrirvara sem eru öðruvísi sár. Ég hafði átján mánuði og vissi að þetta væri búið sex mánuðum áður en hún fór. Ég vissi að ég yrði ekkill þó ég hafi ekki farið í neinar ekklaæfingabúðir,“ segir Ingi.

„Sorgin hófst hjá mér átján mánuðum áður en hún dó.“

Börnin hafi mikla aðlögunarhæfni en áfallið sé um leið verkefni sem þau þurfi að eiga við alla ævina. Yngsta dóttirin muni ekki muna eftir mömmu sinni heilbrigðri.

„Það ætti hreinlega að vera til umboðsmaður aðstandenda sem stæði vörð um þau réttindi og aðgengi að þeim réttindum sem þú átt. Ég held að það sé full ástæða til að skoða þetta því þetta er svo margslungið,“ segir Ingi að lokum.

#færist #manneskju #skuggi #yfir #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262926412d/-thad-faerist-skuggi-yfir-mann-eskju-sem-endar-med-thvi-ad-hann-raenir-hana-lifinu-

📰 Aðrar fréttir

Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 0
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife ...
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 2
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 2
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 2
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 2
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að það sé „köld tuska“ í andlitið á Úkraínumönnum og stuðningsþjóðum þeirra að Donald Trump Bandaríkja...
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
📅 11.10.2026 👁️ 3
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti fy...
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna. „En til þess að geta lagað það sem s...
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Dómsmálaráðuneyti Ban...
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
📅 11.10.2026 👁️ 3
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
Rescuers moved the apes after their habitats were threatened by intense wildfires over the summer.
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
Sæll og takk fyrir einlæga spurningu. Stutta svarið er já. Það sem þú lýsir er eðlilegt og það er ekkert mótsagnakennt við að sakna konunnar þinnar sá...
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
Dýragarðurinn í Jórvíkurskíri á Englandi hefur tilkynnt að tígrisdýrið sem varð manni að bana í gær verði ekki aflífað.Tígrisdýrið réðst á manninn þeg...
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
📅 11.10.2026 👁️ 3
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
Lewis Hamilton's incorrect strategy call during the Singapore Grand Prix means Kimi Antonelli can win the world title at the next race in Austin.
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
Austfirðingar og Eyjamenn vilja ekki vera í sama lögregluembætti og hafa óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra. Hún hefur boðað fækkun lögregluembætt...
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
Er þetta meðal þeirra 69 mála skráðu í kerfi lögreglu í dag. Innbrotin áttu sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköllum í Miðbæ, Vestur...
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
📅 11.10.2026 👁️ 4
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
Andy Burnham has faced criticism for comments he made in the wake of Manchester City being found guilty of all charges related to breaches of the Prem...
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
📅 11.10.2026 👁️ 4
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
He says voters were not "sufficiently" informed about how foreign actors sought to disrupt UK democracy.
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
Einn maður var handtekinn fyrir ofbeldi í heimahúsi í dag, í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem er Breiðholt og Kópavogur. Þetta kemur fram í dagbók lögreg...
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu hefur vakið miklar deilur og seðlabankastjóri sagði áformin vera heimskuleg. Stefán Ólafsson, hagfræðiprófe...
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu Vís­inda­menn rann­saka rúst­ir borg­ar sem hef­ur leg­ið und­ir vatni í Kirg­ist­an u...
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
Þetta tilkynnti þingforsetinn Andreas Norlén, fulltrúi Moderaterna, eftir hádegið en hann mun hitta Andersson á þriðjudagsmorgun þar sem hún getur ann...
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
Frjálsar risaskjaldbökur eru mun fleiri en áður hefur verið talið.Ný talning hefur leitt í ljós að um 180 þúsund Aldabra-risaskjaldbökur eru á Aldabra...
Poland detains man suspected of planning assassination of PM Donald Tusk
📅 11.10.2026 👁️ 3
Poland detains man suspected of planning assassination of PM Donald Tusk
Police received credible information about possible attacks against Donald Tusk and his defence minister.
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
Samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem á að gilda til 2040 er gert ráð fyrir að ríkisframlög til sjóvarna lækki úr 181 milljón niður í 144 milljónir til ár...
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
Eldurinn kom upp um tólfleytið í hádeginu gær en hann kviknaði í áltökubíl í kerskála álversins sem notaður er til að flytja fljótandi málm. Slökkvili...
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
📅 11.10.2026 👁️ 4
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
The Spanish Government has officially recognised a 77.69% probability of at least one volcanic eruption occurring somewhere in the Canary Islands with...
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
📅 11.10.2026 👁️ 4
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
The Yemeni group says it carried out attacks that killed 13 people over the weekend and targeted two airports and oil facilities.
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
📅 11.10.2026 👁️ 4
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Rússland og Úkraína hafi gert með sér samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvort annars.Volodymyr Zel...
What British expats should check before using UK online services abroad
📅 11.10.2026 👁️ 4
What British expats should check before using UK online services abroad
Moving from the UK to the Canary Islands does not necessarily mean giving up every online account or subscription. The truth is that many people conti...
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 5
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
📅 11.10.2026 👁️ 6
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
Á föstudaginn tilkynnti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, víðtækar refsiaðgerðir gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag. Dómstóllinn ve...
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
Um helgina eru 40 ár frá leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjov í Höfða. Leiðtogafundurinn olli straumhvörfum í Kalda stríðinu og setti allt í hliðina í ...
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Tvenn mótmæli gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði hófust klukkan 15 í dag. Þau eru annars vegar haldin á Austurvelli í Reykjavík og á Seyðisfir...
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
📅 11.10.2026 👁️ 3
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
A new residential complex of 112 affordable homes for local workers and families is set to be finished in Las Chafiras, San Miguel de Abona, in 2027, ...
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu Fréttin11. október 2026Covid bóluefni, Dómsmál, ErlentLeave a Com...
Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir
Vísir hefur undir höndum tölvupósta þar sem Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar MAST, felur Kjartani Davíð Sigurðssyni að gera till...
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
Donald Trump tilkynnti um vopnahléið á samfélagsmiðli sínum Truth Social án þess að gefa miklar upplýsingar um útfærsluna, annað en að það tæki gildi ...
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
📅 11.10.2026 👁️ 4
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
The PM was speaking after violent attacks at Polish schools this week left one dead and others injured.
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
Kvöldfréttirnar voru fastur liður á skjánum þar til 31. ágúst síðastliðinn. Ekki leið sú Þorláksmessa að fréttamenn smökkuðu ekki skötu. Kryddsíld hef...
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
Horseday ehf. veitti hestaeiganda ekki fullnægjandi fræðslu um vinnslu persónuupplýsinga hennar í smáforritinu Horseday, samkvæmt úrskurði Persónuvern...
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi...
„Þetta var al­gjör­lega magnað“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Þetta var al­gjör­lega magnað“ - Vísir
„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi...