Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 14. júlí og staðfestur í Landsrétti þann 17., segir að Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar fjöldamörg ætluð brot mannsins, þar á meðal þjófnaði, hylmingarbrot, húsbrot, eignaspjöll, brot gegn lögum um fíkniefni, vopnalagabrot og minniháttar líkamsárásir.
Ellefu brot á þrettán dögum
Samkvæmt gögnum málsins sé hann grunaður um eitt brot í febrúar síðastliðnum, þrjú í mars, 16 í apríl, þrjú í maí, 10 í júní og 11 í þessum mánuði, júlí, en hann hafi verið handtekinn 13. júlí rétt fyrir klukkan 18:00 á vettvangi ætlaðs þjófnaðarbrots.
„Honum hafði verið sleppt fyrr í gær, en var strax staðinn að þjófnaði í heimahús,“ segir í málsatvikalýsingu.
Lögreglustjóri hafi krafist þess að maðurinn sæti gæsluvarðhaldi á meðan þessi mál eru rannsökuð og eftir atvikum á meðan dómsmál, sem kann að verða höfðað vegna þeirra, er rekið fyrir dómstólum. Þá kröfu byggi embættið á ákvæði laga um meðferð sakamála um gæsluvarðhald á grundvelli svokallaðrar síbrotagæslu.
Á grundvelli fram lagðra gagna telji dómurinn að á manninum hvíli rökstuddur grunur um að hafa staðið að allflestum þeim brotum sem lögreglan rannsakar. Því sé uppfyllt því skilyrði sakamálalaga um gæsluvarðhald.
Fjórir tugir brota
Ætluð brot, alls fjórir tugir, eru framin á fárra mánaða tímabili allt frá því að varnaraðila var sleppt úr fangelsi 21. febrúar sl. og þar til hann var handtekinn í gær 13. júlí. Þar af eru 11 ætluð brot framin á síðastliðnum tveimur vikum. Með vísan til fjölda og eðlis brotanna er fallist á það með sækjanda að hætta sé á að varnaraðili haldi áfram brotum verði hann nú látinn laus.“ Því er uppfyllt skilyrði laganna fyrir því að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi vegna síbrota.
Einnig í ljósi fjölda og eðlis þeirra brota sem maðurinn liggur undir rökstuddum grun um að hafa framið, fallist dómurinn á það með lögreglustjóra að verði öll brotin dæmd í einu séu sterkar líkur fyrir því að refsing fyrir þau verði ekki skilorðsbundinn.
Vægari úrræði, svo sem farbann, sé ekki talið geta rofið þessa hrinu ætlaðra brota. Ekki þyki ástæða til þess að marka varðhaldinu skemmri tíma en lögreglustjóri krefst. Því skuli maðurinn sæta gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 11. ágúst.