Árásin var gerð við mosku sem heitir Islamic Center og ku vera sú stærsta í San Diego í Kaliforníu. Á lóðinni er einnig skóli þar sem boðið er upp á kennslu í arabísku og íslam.
AP fréttaveitan segir að myndefni sem tekið var úr þyrlu sýni fjölda barna leidd út úr byggingunni af lögregluþjónum.
Yfirmaður lögreglunnar í San Diego segir ógnina yfirstaðna. Báðir árásarmennirnir séu látnir.
Lögreglustjórinn sagði að um klukkan 11:43 að staðartíma barst útkall um skotárás. Fyrstu lögregluþjónarnir hafi mætt á vettvang fjórum mínútum síðar. Þeir komu að þremur líkum fyrir utan moskuna.
Á sama tíma og lögregluþjónana bar að garði barst útkall um aðra skotárás nærri moskunni. Þá hafði verið skotið á garðyrkjumann, sem varð þó ekki fyrir skoti. Skömmu síðar fundust táningarnir látnir í bíl þar nærri.
BREAKING: At least 5 people killed, including 2 suspects and 3 adults, in shooting at the Islamic Center of San Diego in California, police say. pic.twitter.com/Lljtlw92VB
— AZ Intel (@AZ_Intel_) May 18, 2026
Talið er að árásarmennirnir, sem voru tveir menn sautján og nítján ára gamlir, hafi svipt sig lífi en það hefur ekki verið staðfest.
Samkvæmt heimildum NBC News heita árásarmennirnir Cain Clark (sá yngri) og Caleb Vazquez. Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir enn. Í bíl mannanna fundust þó skrif sem sögð eru vera gegn íslamstrú.
Annar mannanna ungu hafði tekið byssu af heimili foreldra sinna fyrr í dag. Þá segja heimildarmenn fjölmiðla vestanhafs að á þeir hafi skrifað orðin „hate speech“ eða „hatursorðræða“ á byssu sem fannst með þeim.
Fréttin hefur verið uppfærð. Síðast klukkan 23:40.