Útgönguspár benda til þess að Svisslendingar hafi hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu tillögu um að komið verði á hámarksíbúafjölda í landinu. Kjörstöðum lokaði í morgun og samkvæmt spám greiddi rúmur helmingur kjósenda, eða 55%, atkvæði gegn tillögu um að lögbundið hámark íbúafjölda í landinu verði 10 milljónir manns frá og með árinu 2050.
Nú býr þar 9,1 milljón manna en erlendir ríkisborgarar eru rúmur fjórðungur íbúa.
Skoðanakannanir í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar gáfu til kynna að mjótt yrði á mununum en margir óttuðust að upplausnarástand myndi brjótast út ef tillagan yrði samþykkt. Fjöldatakmörkin myndu hafa mikil áhrif á svissneskan efnahag og samskipti við aðrar þjóðir og ESB.
Monika Ruhl, framkvæmdastjóri samtaka atvinnulífisins þar í landi, Economiesuisse, sagðist í samtali við ríkisfjölmiðilinn RTS vera létt.
Harðlínuflokkurinn Þjóðarflokkur Sviss (SVP), sem er stærsti stjórnmálaflokkur landsins, stóð á bak við tillöguna.
SVP-liðar kenna mikilli fjölgun innflytjenda síðustu ár um hin ýmsu vandræði í svissnesku samfélagi, þar á meðal húsnæðisskort, hækkun húsaleigu, troðningi í lestarvögnum og umferðarteppur.
Tillagan mætti mótstöðu frá ríkisstjórn, þingheimi og mörgum geirum atvinnulífsins.
Beat Jans, dómsmálaráðherra Sviss, hafði varað við því fyrir atkvæðagreiðsluna að yrði tillagan samþykkt gæti það orðið eins og „Brexit fyrir Sviss“ og vísar þar í þegar Bretland gekk úr Evrópusambandinu eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.