Leyniþjónusta sænska hersins segir að rússnesk yfirvöld hagræði opinberum hagtölum til að láta efnahag sinn líta út fyrir að vera í betri málum en raunin sé.
Svíarnir telja að verðbólga sé meiri í Rússlandi en opinberar tölur gefa til kynna og að hallinn á ríkissjóði sé meiri en Rússar viðurkenna.
„Þrátt fyrir að nýleg verðhækkun á olíu hafi aukið tekjur Rússa þyrfti verðið að vera yfir 100 dollurum á hverja fötu í meira en ár til að laga fjárlagahalla Rússlands,“ sagði leyniþjónusta sænska hersins í yfirlýsingu.
Thomas Nilson, yfirmaður hennar, sagði að staðan breytti ekki vígstöðu Rússa til skamms tíma þar sem Rússar væru staðráðnir í að halda áfram stríðinu í Úkraínu og halda uppi fjölþáttaógnum gegn aðildarríkjum Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins.
„Það er pólitísk ákvörðun en ekki efnahagsleg. Efnahagslegar þrengingar og viðskiptaþvinganir hafa þó áhrif á hvers konar hernaðarmætti Rússar geta beitt og hversu fljótt þeir geta gert það.“