Það er ekki útlit fyrir að veðurskilyrði til að horfa á almyrkvann á morgun verði eins og best er á kosið.
Það verður skýjað víða á landinu, þar á meðal á stórum hluta þess svæðis sem almyrkvinn verður sjáanlegur á. Skuggi fellur yfir allt það svæði á meðan á almyrkvanum stendur og hann verður þannig greinanlegur þó að ekki sé hægt að horfa beint til sólar.
Hægt er að skoða skýjahuluspá á vef Veðurstofu Íslands.
Þá er einnig spáð talsverðri rigningu mjög víða á tíma sólmyrkvans.
Hverju þarf að huga að fyrir sólmyrkvann? Hvar og hvenær er best að horfa á hann? Hvernig tryggjum við öryggi okkar yfir myrkvann? Svör við þessum og fleiri spurningum varðandi sólmyrkvann miðvikudaginn 12. ágúst er að finna í þessari grein.
Góðan daginn.
Sólmyrkvi verður á morgun. Hann varir alls í rúmar tvær klukkustundir, frá um 16:45 og til um 18:50. Nákvæm tímasetning hans veltur á því hvar fólk er statt á landinu.
Almyrkva verður aðeins hægt að sjá á vestanverðu landinu. Lengstur verður almyrkvinn hjá Látrabjargi, um 2 mínútur og 13 sekúndur.
Þau sem geta eru hvött til að horfa á almyrkvann að heiman. Ætli fólk að ferðast til að horfa á hann er ráð að undirbúa sig vel og leggja tímanlega af stað. Þá er gott að hafa með sér nægar vistir, mat, drykk og lyf. Þess má vænta að tafir verði á umferð og þjónustu, til dæmis aðgengi að salernum og veitingasölu.
Ég heiti Guðmundur Atli Hlynsson og ætla að færa ykkur upplýsingar og fréttir sem tengjast sólmyrkvanum í dag. Það er velkomið að senda mér ábendingar og/eða spurningar sem þið hafið varðandi sólmyrkvann á tölvupóstfangið gudmunduratli@ruv.is.