Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir að búist sé við miklum fjölda fólks á þeim svæðum þar sem almyrkvinn verður mestur og varir lengst, til að mynda á Reykjanesi, Vesturlandi og Vestfjörðum. Mikill fjöldi gesta gæti skapað verulegt en tímabundið álag á innviði.
Farnetsfyrirtækin séu að undirbúa ýmsar ráðstafanir á Reykjanesi og Snæfellsnesi en staðan við Látrabjarg sé viðkvæmari, þar sem fyrirhuguð uppbygging fjarskiptainnviða á svæðinu hafi tafist.
„Þar er því þörf á umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrbótum til að auka afköst og útbreiðslu farnets í tæka tíð,“ segir í tilkynningunni.
„Nauðsynlegt er að ráðast í uppfærslu á fyrirliggjandi fjarskiptainnviðum þar sem ekki næst að ljúka lagningu rafstrengja og ljósleiðara á svæðinu í tæka tíð. Fjarskiptaöryggi á svæðinu við Látrabjarg þar sem álagið verður sem mest verður styrkt með aðkomu farnetsfyrirtækja og stuðningi ráðuneytisins,“ er haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra.
Ítrekað er að símtöl í Neyðarlínuna, 112, hafi ávallt forgang í farnetskerfum en þrátt fyrir það sé mikilvægt að styrkja innviði til að tryggja sem besta þjónustu við almenning og styðja við störf viðbragðsaðila.