Svo var það einn sem var „með allt í skrúfunni,ׅ“ eins og greint er frá í dagbók lögreglunnar. Sá ók undir áhrifum áfengis, reyndist vera á 154 kílómetra hraða, þar sem hámarkið er 80, réttindalaus, sýndi af sér svigakstur og gaf ekki stefnuljós.
Einnig var tilkynnt um nokkur minniháttar umferðaróhöpp, en engin slys urðu á fólki.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á veitingastað á höfuðborgarsvæðinu þar sem maður hafði setið að snæðingi og drykkju en neitaði síðan að borga.