Ný bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur samþykkt að ráða Sturlaug Haraldsson sem bæjarstjóra. Hann hefur formlega störf 19. ágúst.
Sturlaugur hefur starfað við stjórnun sjávarútvegsfyrirtækja hérlendis og erlendis og er fæddur og uppalinn á Akranesi. Hann hefur leikið með knattspyrnuliði ÍA og er í hópi leikjahæstu manna félagsins.
„Mér þykir gríðarlega vænt um bæinn minn og fólkið sem hér býr,“ er haft eftir Sturlaugi í tilkynningu. „Þetta er skemmtilegt tækifæri til að hafa áhrif á umhverfi mitt og ég vona sannarlega að ég geti gert eitthvað gagn.“