Stuðningur Íslendinga í hernaðarmálum, á stjórnmálasviði, í orkumálum og við mannúðaraðstoð er Úkraínumönnum lífsspursmál. Þetta segir í yfirlýsingu Ruslans Stefanchuks, forseta úkraínska þjóðþingsins, til fjölmiðla.
„Hið sama gildir um liðveislu ykkar við það að sækja úkraínsk börn sem Rússar hafa numið á brott, í blóra við öll lög, og færa þau aftur heim.“
Stefanchuk er í opinberri heimsókn á Íslandi í boði forseta Alþingis. Hann verður sérstakur gestur á fundi forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á morgun.
Í yfirlýsingu sinni segir Stefanchuk að fleira verði rætt en stríðið, ekki síst framtíðin.
„Um það hvernig við getum eflt tengsl Úkraínu og Íslands að stríðinu loknu og hvernig við getum lagt grunninn að þeirri framtíð strax í dag.“
Fengu orðu Jaroslavs hins vitra
Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis undirstrikaði þverpólitískan stuðning Íslands við Úkraínu á fundi sínum með Stefanchuk á Alþingi í dag. Þau ræddu einnig um stuðning alþjóðasamfélagsins við varnarbaráttu Úkraínu og stöðu stríðsins.
„Þá var rætt um áskoranir daglegs lífs á stríðstímum, meðal annars aðstæður úkraínskra barna og skólagöngu þeirra. Sums staðar fer kennsla fram í neðanjarðarbyrgjum af öryggisástæðum,“ segir í tilkynningu frá Alþingi.
Stefanchuk veitti Þórunni og Birgi Ármannssyni, fyrrverandi forseta Alþingis, ríkisviðurkenningu Úkraínu fyrir hönd Volodimírs Selenskís forseta Úkraínu. Þau hlutu orðu Jaroslavs hins vitra af 2. gráðu. Hann var stórfursti í Kænugarði á 11. öld.
„Viðurkenningin var veitt fyrir veigamikið framlag þeirra beggja til að efla samstarf ríkjanna, styðja fullveldi Úkraínu og verja það að landamæri ríkisins séu virt í hvívetna.“