Ríkiseignum var tilkynnt um það í byrjun mánaðar að starfsemi í húsnæði Stuðla væri bönnuð - þar sem ekki fékkst útgefið öryggisvottorð frá byggingarfulltrúa. Þetta kemur fram í svörum frá Reykjavíkurborg.
Barna- og fjölskyldustofa fékk bráðabirgðaleyfi fyrir starfseminni degi síðar með aukinni mönnun. Rannsókn HMS sýndi að Ríkiseignir vanræktu brunavarnir á Stuðlum verulega í aðdraganda eldsvoðans 2024.
Óskað eftir öryggisúttekt einu og hálfu ári eftir eldsvoðann
Þann 17. mars síðastliðinn óskuðu Ríkiseignir, sem eigandi húsnæðis Stuðla, eftir öryggisúttekt á húsnæðinu. Neyðarvistunin, sem brann 2024 með þeim afleiðingum að 17 ára piltur lést, hefur ekki verið tekin í notkun nema einungis lítill hluti sem varð ekki fyrir verulegum skemmdum.
Daginn eftir að Ríkiseignir óskuðu eftir úttektinni var skýrsla HMS um eldsvoðann gerð opinber. Þar var það tekið skýrt fram að eigendur mannvirkja eigi að taka ábyrgð á brunavörnum.
En þó líður á annað ár þar til Ríkiseignir óska eftir úttektinni - en starfsemi hófst á ný í óskemmda hluta hússins skömmu eftir eldsvoðann.
Kröfðu Ríkiseignir ítrekað um úrbætur í aðdraganda eldsvoðans
Í skýrslunni er dregin upp dökk mynd af aðdraganda eldsvoðans. Eftirlitsaðilar hafi ítrekað krafið Ríkiseignir um úrbætur á brunavörnum sem ekki var sinnt.
Viðbyggingin sem hýsti neyðarvistunina sem brann hafi aldrei fengið öryggisúttektarvottorð og því mátti ekki taka hana í notkun. Byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar átti að sjá til þess. Eftirlitsaðilar hafi líka brugðist. Hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið fullnægjandi.
Starfsemi í húsinu bönnuð en leyfi fékkst degi síðar
Úttektin byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar var gerð 31. mars en hann gerði athugasemdir og því hvorki gefið út öryggis- né lokavottorð. Þeirri heimsókn var fylgt eftir mánuði síðar og enn voru útistandandi athugasemdir - þá við brunahólfandi hurðir sem samrýmdust ekki brunahönnun.
Byggingarfulltrúi ákvað í kjölfarið að banna notkun húsnæðisins og það var tilkynnt til Ríkiseigna 5. maí. Daginn eftir fékkst leyfi fyrir starfsemi í húsnæðinu gegn því að Barna- og fjölskyldustofa myndi bæta við mönnun til bráðabirgða.
Fleiri starfsmenn á vakt á meðan beðið er eftir nýjum hurðum
Samkvæmt svörum frá Barna- og fjölskyldustofu er mönnun nú með þeim hætti að alltaf eru minnst fimm á vakt. Ef börn eru á hverri deild, öryggisdeild, neyðarvistun og meðferðargangi - jafnvel bara eitt á hverri, eru alltaf sjö starfsmenn í húsi.
Ríkiseignir hafi pantað nýjar brunavarnahurðir en það taki tíma að fá þær og búist er við þeim í byrjun nóvember. Þangað til þá verði fleiri á vakt öllum stundum.
Lögreglurannsókn á eldsvoðanum er ekki enn lokið. Tíu eru með réttarstöðu sakbornings.