Yfir þúsund stúdentar komu marserandi til Belgrad, höfuðborgar Serbíu, í gærkvöld frá ýmsum borgum í landinu. Þingkosningar verða í landinu á sunnudaginn.
Stúdentarnir fengu líflegar móttökur á göngu sinni til Belgrad. Íbúar í þorpum og bæjum tóku á móti þeim með mat og faðmlögum og vegfarendur á dráttarvélum og hjólum fylgdu þeim eftir. Margir voru komnir langa leið, líkt og Ognjen Nestorovic sem gekk frá Valjevo til Belgrad, um eitt hundrað kílómetra langa leið.
Fjöldahreyfing stúdenta teflir fram lista í kosningunum sem er talinn helsta ógn við Serbneska framfaraflokkinn, SNS, flokk fyrrum forseta landsins, Aleksandar Vučić. Kosninganna hefur verið beðið með eftirvæntingu en stúdentar hafa leitt fjölmörg og mikil mótmæli gegn Vučić frá 2024.
Mótmælin brutust fyrst út eftir mannskætt slys 1. nóvember 2024 þegar þak á útisvæði við aðallestarstöð í borginni Novi Sad hrundi og 16 manns létust. Stúdentar kölluðu upphaflega eftir því að gerð yrði ítarleg rannsókn á slysinu.
Margir hafa kennt spillingu og vanrækslu stjórnvalda um harmleikinn. Mótmælin fóru svo að beinast gegn forsetanum og kröfur um kosningar urðu æ háværari. Hann lét loks undan og rauf þing 9. september og boðaði til þingkosninga. Hann býður sig fram í þingkosningunum og verður forsætisráðherraefni flokksins.
Serbneski framfaraflokkurinn, SNS, hefur verið við völd frá 2012. Vučić hefur verið forseti Serbíu frá 2017 og gegndi áður embætti forsætisráðherra frá 2014 til 2017.
Stúdentar hafa boðað til síðustu mótmælanna fyrir kosningarnar í kvöld í miðborg Belgrad. Vučić kom fram á fjöldafundi í Nis í gær og mun einnig halda minni framboðsfundi í Belgrad og fleiri borgum í dag.