Leikarinn Dennis Quaid freistar þess nú að hætta við mánaðarlegar meðlagsgreiðslur sínar, 13.750 dollara (1.690.000 kr.) til fyrrverandi eiginkonu sinnar, Kimberly Buffington, vegna 18 ára tvíbura þeirra, Thomas og Zoe.
Quaid lagði fram beiðni í Stanley Mosk dómshúsinu í Los Angeles á miðvikudag. Í beiðni sinni vitnaði leikarinn, 72 ára, í skilmála skilnaðarsamnings síns og Buffington frá árinu 2018, þar sem kveðið var á um að greiðslunum myndi ljúka þegar börnin þeirra kláruðu 12th grade, sem er síðasta ár menntaskóla í Bandaríkjunum og nemendur alla jafna 17-18 ára gamlir.
Zoe útskrifaðist úr menntaskóla 23. maí en Thomas útskrifast 3. júní.

Í beiðni Quaids kemur fram að samkvæmt skilnaðarsamningnum skyldi hann einnig greiða Buffington, 54 ára, aukalega upphæð ár hvert ef hann þénar meira en 1,3 milljónir dala. Quaid óskaði eftir því að bónusupphæðin yrði reiknuð hlutfallslega miðað við útskriftardag Zoe og Thomas í stað tekna hans yfir allt árið.
Quaid og Buffington voru gift í 14 ár og sóttu um skilnað ítrekað á meðan áður en þau skildu endanlega árið 2016. Þegar þau gengu frá skilnaði sínum árið 2018 samþykktu fyrrverandi þau sameiginlega forsjá Thomas og Zoe, sem fæddust með staðgöngumóður í nóvember 2007.

Árið 2020 lagði Quaid fram skjöl fyrir dómi þar sem hann fór fram á að dómarinn lækkaði meðlagsgreiðslur sínar og hélt því fram að hann hefði varið helmingi tímans með börnunum og greitt allan kostnað þeirra. Quaid samþykkti að lokum að greiða enn meira svo lengi sem það væri „byggt á sanngjörnum þörfum Thomas og Zoe“.
Buffington var þriðja eiginkona Quaid. Hann var áður giftur PJ Soles frá 1978 til 1983 og Meg Ryan frá 1991 til 2001. Quaid og Ryan, 64 ára, eiga einn son, leikarann Jack Quaid úr sjónvarpsþáttunum The Boys. Quaid giftist fjórðu konu sinni , Lauru Savoie, 33 ára, árið 2020.
Í fyrra sagði Quaid við Fox News Digital að líf sitt með Savoie væri eins og „paradís“ þrátt fyrir 39 ára aldursmun. „Þetta er nánasta samband sem ég hef nokkurn tíma átt,“ sagði Quaid. „Ég veit ekki af hverju Guð beið svona lengi með að færa okkur saman, en ég er mjög ánægður að hann kom með hana inn í líf mitt , eða að ég gekk inn í hennar.“