Samherji hefur stofnað átakssjóð sem fengið hefur nafnið Samheldni. Sjóðnum er ætlað að standa fyrir stórfelldu átaki í fjárfestingum hjá þeim sem sinna meðferðarúrræðum fyrir fólk með fíknisjúkdóma á Íslandi. Samherji ætlar að leggja fram 20 milljónir á ári á næstu fimm árum. Stefnt er að því að fá atvinnulífið allt til liðs við verkefnið svo sjóðurinn geti úthlutað yfir 300 milljónum króna til þriggja bráðnauðsynlegra átaksverkefna.
Stofna átakssjóð til að auka og bæta þjónustu við fólk í fíknivanda