Lögreglan var kölluð til í Hlíðahverfi þegar tilkynning barst vegna slagsmála yfir bílastæði. Enginn var handtekinn.
Þetta er meðal þess sem segir í dagbók lögreglu yfir verkefni sem embættið sinnti í dag.
Þá barst einnig tilkynning um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í Garðabæ. Tvær óskyldar tilkynningar bárust um heimilisofbeldi, ein í Múlahverfi og önnur í Breiðholti og voru tveir einstaklingar handteknir í tengslum við þær og færðir í fangageymslu.