Grammy-verðlaunahafinn, tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Finneas O´Connel er einna helst þekktur sem bróðir stórstjörnunnar Billie Eilish en þau hafa samið og framleitt megnið af tónlist Billie saman. Þau deila höfundarrétti á nánast öllum helstu smellum hennar en hún semur flesta textana sína sjálf.
Mikill heiður og mikil pressa
Finneas og Claudia Sulewski, sem er leikkona og áhrifavaldur, hófu samband sitt árið 2018 og í september 2025 bað Finneas sinnar heittelskuðu á meðan þau voru í þyrluferð til að fagna sjö ára sambandsafmælinu sínu.
Billie Eilish gegndi líkt og fyrr segir afar mikilvægu hlutverki á stóra degi bróður síns en hún sá um að gefa þau saman á lúxusbúgarðinum San Ysidro Ranch í Santa Barbara í Kaliforníu, er fram kemur í umfjöllun TMZ um athöfnina.
Stjörnufans á búgarðinum
Foreldrar þeirra, Maggie Baird og Patrick O’Connell, voru viðstödd athöfnina en gestalistinn var stjörnum prýddur. Billie mætti með kærastanum sínum, leikaranum Nat Wolff, en þau hafa verið í sambandi frá því í vor.
Meðal annarra gesta má nefna þau Justin og Hailey Bieber, Rachel Sennott, Emmu Chamberlain, Rebecca Black, Jason Sudeikis, Kristen Bell, Dax Shepard, Devon Lee Carlson, Stassie Karanikolaou, Jesse Jo Stark og fleiri.
Að sögn Vogue klæddist Sulewski fjórum mismunandi Oscar de la Renta-kjólum yfir brúðkaupshelgina einum fyrir æfingakvöldverðinn, einum fyrir athöfnina, einum fyrir fyrsta dansinn og veisluna og einum fyrir eftirpartíið.