Stjórn útgerðarfélagsins Brims hefur samþykkt að kaupa öll hlutabréf í Lýsi fyrir 20 milljarða króna. Þetta kom fram í tilkynningu frá Brimi í kvöld. Kauptilboðið var samþykkt í september með fyrirvara um samþykki stjórna beggja félaga, hluthafafundar Brims og Samkeppniseftirlitsins.
Tilboðið þá nam þrjátíu milljörðum en í tilkynningunni segir að endursamið hafi verið um verð og greiðslukjör sem meðal annars tekur tillit til vaxtaberandi skulda. Hlutur Brims nemur um sex prósentum af heildarhlutafé þess.
Hluthöfum er boðið að kaupa hlutabréf í Brim að nafnvirði 70 milljónir króna að nafnvirði. Heimild aðalfundar félagsins fyrr á þessu ári takmarkast við að samanlögð kaup fari yfir tíu prósent af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.
Heildarkaupverð greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brim og er miðað við gengið 85 krónur á hvern hlut og verður að fullu greitt þegar viðskiptin verða frágengin að fengnu samþykki opinberra aðila.
Jafnframt þessu tilkynnti Brim um sölu á 43 prósenta hlut í útgerðarfélaginu Melnesi til KG Fiskverkunar á Rifi fyrir 1,8 milljarða króna. Kaupverðið verður greitt með hlutafé í Brimi en KG hefur verið einn stærsti hluthafi félagsins.
Brim selur einnig helmingshlut í danska félaginu Polar Seafood Denmark til grænlenska félagsins Polar Seafood Greenland fyrir 925 milljónir danskra króna, með fyrirvara um fjármögnun og samþykki hins opinbera.