Kínverski rafbílarisinn BYD er í viðræðum við Stellantis, framleiðanda Jeep, og aðra bílaframleiðendur um yfirtöku á verksmiðjum þeirra innan ríkja Evrópusambandsins. Eru viðræðurnar sagðar vera liður í alþjóðlegri útrás fyrirtækisins.
Stellantis kom fjárfestum nýverið á óvart með 22 milljarða evra afskrift á rafbílarekstri sínum og sagði að fyrirtækið hefði ofmetið eftirspurn eftir hreinorkubílum.
„Við erum ekki aðeins í viðræðum við Stellantis, við erum líka að tala við önnur fyrirtæki,“ sagði Stella Li, varaforseti BYD, sem fer með alþjóðlegan rekstur, í samtali við fjölmiðla fyrir helgi. „Við erum að leita að hvaða lausu verksmiðju sem er í Evrópu því við viljum nýta þessa umframgetu,“ sagði hún.
Minni eftirspurn í Kína
BYD varð söluhæsti rafbílaframleiðandi heims á síðasta ári en hagnaður fyrirtækisins hefur dregist saman vegna lítillar eftirspurnar á heimamarkaði, sem hefur leitt til þess að það leitar að stærri mörkuðum erlendis.
Bílaframleiðandinn Stellantis tilkynnti fyrr í mánuðinum að hann íhugaði að selja vannýtta verksmiðju á Spáni til kínverska samstarfsfyrirtækisins Leapmotor, sem gæti bjargað störfum til skamms tíma en á sama tíma styrkt kínverska bílaframleiðendur enn frekar.
Þetta er spurning sem allir evrópskir bílaframleiðendur standa frammi fyrir. Bílamarkaður álfunnar hefur aldrei náð sér að fullu eftir samdráttinn við samkomutakmarkanir yfirvalda í covid-faraldrinum. Verksmiðjur bílaframleiðenda í álfunni starfa þannig að meðaltali aðeins á hálfum afköstum.
Þeir standa einnig frammi fyrir samkeppni frá kínverskum bílaframleiðendum en hröð tækniþróun þeirra og lágur framleiðslukostnaður hefur velgt þeim undir uggum.
Glænýir Porsche-bílar bíða þess að leggja af stað úr verksmiðju Volkswagen í Þýskalandi. Bílarisinn er einn þeirra sem freistast hafa af því sem kínversku framleiðendurnir hafa að bjóða.
AFP/Ina Fassbender
Voru nánast óþekkt í Evrópu
Þar sem lítil eftirspurn hefur aukið samkeppni á kínverska heimamarkaðinum, líta kínverskir bílaframleiðendur í auknum mæli til Evrópu sem fyrirheitna landsins.
Vörumerki á borð við BYD, MG, Chery, Geely, Leapmotor, Jaecoo og Xpeng voru nánast óþekkt í Evrópu fyrir þremur árum.
Nú standa þau þegar undir níu prósentum af heildarsölu í Evrópu og 14 prósentum af sölu rafbíla, samkvæmt samantekt ráðgjafarfyrirtækisins Dataforce.
Tollar og neytendahvatar, sem aðeins bílar samsettir í Evrópu eiga rétt á, hafa samt verið hindrun fyrir kínverska bílaframleiðendur við að ná markaðshlutdeild í Evrópu.
Því leita þeir í auknum mæli leiða til að komast yfir þessar hindranir með því að framleiða í Evrópu, annað hvort með því að byggja verksmiðjur eða, það sem er enn einfaldara, með því að kaupa þær.
Keypti verksmiðju í Barcelona
Chery hóf þessa þróun árið 2023 með því að kaupa verksmiðju sem áður hafði tilheyrt Nissan í Barcelona á Spáni, þar sem fyrirtækið ætlar nú að framleiða 200.000 ökutæki á ári.
Sami framleiðandi sagðist í síðasta mánuði myndu opna rannsóknar- og hönnunarmiðstöð í París til að vinna að þróun lítils rafbíls til framleiðslu í Evrópu fyrir heimamarkað.
Nissan mun á sama tíma hafa það til skoðunar að selja bresku verksmiðju sína í Sunderland – þá síðustu í Evrópu – til Chery eða kínverska fyrirtækisins Dongfeng.
Stellantis, sem framleiðir meðal annars Peugeot, Fiat og Jeep, varð fyrsti evrópski bílaframleiðandinn til að taka af skarið þegar hann tilkynnti að hann íhugaði að selja að hluta til Villaverde-verksmiðju sína í Madríd til Leapmotor, þar sem hann á 51 prósenta hlut.
Stellantis hefur þegar áform um að opna verksmiðju sína í Zaragoza á Spáni svo Leapmotor geti brátt framleitt þar bíl undir eigin vörumerki.
Rafknúinn jeppi sem seldur er undir Opel-merkinu gæti einnig verið framleiddur í Zaragoza í samvinnu við Leapmotor.
Markar fyrsta skiptið
Og þetta er aðeins byrjunin: Þessi þýsk-kínverski bíll á að þjóna sem fyrirmynd fyrir önnur ökutæki Stellantis.
Sumir evrópskir bílar innihalda nú þegar fjölda kínverskra íhluta, eins og rafknúinn Twingo frá Renault, sem einnig var hannaður í verksmiðju Renault í Kína.
Tilkynning Stellantis markar þó fyrsta skiptið sem evrópskur bílaframleiðandi hefur svo opinskátt kynnt slíkt samstarf um framleiðslu bíla með kínverskum samstarfsaðila. Að því er Bloomberg hermir mun Stellantis ekki láta þar við sitja.
Framleiðandinn er einnig sagður íhuga að selja þrjár verksmiðjur – eina í Frakklandi, aðra í Þýskalandi og þá þriðju á Ítalíu – til kínverska framleiðandans Dongfeng, en þeir tveir hafa átt í löngu samstarfi.
Sendinefnd frá Dongfeng heimsótti nýlega verksmiðjuna í Frakklandi að því er AFP-fréttaveitan hefur eftir fulltrúa verkalýðsfélags á þeim slóðum.
Ford og Volkswagen líka
Ford staðfesti einnig á fimmtudag að fyrirtækið væri í viðræðum við kínverska fyrirtækið Geely um sölu á hluta verksmiðju í Valencia á Spáni. Geely, sem er einnig meðeigandi að verksmiðjum Renault í Brasilíu og Suður-Kóreu, myndi framleiða bíl fyrir Evrópumarkað.
Kínversku fyrirtækin hafa einnig freistað þýska risans Volkswagen.
Forstjórinn Oliver Blume sagði nýlega að fyrirtækið væri að kanna hvort „tækifæri séu fyrir kínverska bíla okkar í Evrópu eða til að opna fyrir samstarf, kannski með samstarfsaðilum okkar í Kína“.
Aðrir möguleikar væru að selja verksmiðjur til hergagnaframleiðenda, bætti hann við. „Versti og kostnaðarsamasti kosturinn er að loka verksmiðju,“ sagði Blume.
Forstjóri OPmobility, fransks bílavarahlutaframleiðanda, tekur undir þetta sjónarmið. Að selja evrópskar bílaverksmiðjur til kínverskra framleiðenda væri „snjall kostur, frekar en að auka við offramboð,“ sagði sá, Felicie Burelle að nafni.
Megum ekki gefa eftir
En „við megum ekki gefa eftir gagnvart þessum sírenusöng,“ varar Bernard Jullien við, sérfræðingur í bílaiðnaði við háskólann í Bordeaux.
„Fyrir framleiðendur, birgja, starfsfólk og sveitarstjórnarmenn er freistandi að kjósa að selja til kínversks aðila frekar en að hverfa á braut,“ segir hann.
„En þetta jafngildir því að rétta ógnvænlegum keppinauti hjálparhönd, hér í hjarta Evrópu, með því að veita honum öflugan hvata til að komast inn á markaðina okkar,“ skrifar Jullien í grein á vefsíðunni autoactu.com.
Hann telur þessa eftirgjöf vera auðveldu leiðina fyrir framleiðanda eins og Stellantis, sem hefur tapað markaðshlutdeild í Evrópu.
Þar sem kínversk fyrirtæki hafa tekið forystuna í þróun rafbíla útilokar hann ekki að fyrirtækið ákveði að útvista rafvæðingunni til kínverskra samstarfsaðila sinna.
En þessi „hver er sjálfum sér næstur“-stefna gefi á endanum kínverskum framleiðendum byr undir báða vængi á meðan hún eyðileggi evrópska bílaframleiðslu, skrifar Jullien.
Aðeins löggjafinn geti gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir að evrópskir bílaframleiðendur falli fyrir þessari freistingu.