Stefnt er að því að endurhæfingarþjónusta, sem áður var á Kristnesspítala í Eyjafirði, fari í leiguhúsnæði á Akureyri fyrir áramót. Velunnarar Kristness hafa boðað til samstöðutónleika um helgina en alls óvíst er hvað verður um gamla spítalann.
Á Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit hefur verið endurhæfingar- og öldrunardeild Sjúkrahússins á Akureyri um árabil. Snemma á þessu ári vöknuðu grunsemdir um að þar væru rakaskemmdir og mygla.
Snemma í sumar kom í ljós að þær skemmdir voru talsvert meiri en talið var í fyrstu og ljóst að húsakosturinn væri hvorki öruggur fyrir sjúklinga né starfsfólk.
Guðjón Hauksson, forstjóri SAk, segir þeirra verkefni fyrst og fremst að tryggja þjónustuna, sem hafi verið fundinn staður innan sjúkrahússins á meðan annarra lausna er leitað.
„Og þar að mínu mati hefur starfsfólk sjúkrahússins á Akureyri lyft algeru grettistaki. Svo er verið að vinna að því að koma göngudeildarstarfseminni fyrir annars staðar hérna á Akureyri.“
Innrétta leiguhúsnæði svo það henti til endurhæfingar
Þá segir hann meiri upplýsingar í vændum um það húsnæði þegar leigusamningur er í höfn. Þann samning segir hann á lokametrunum.
„Þetta er hérna á Akureyri, þar sem er búið að vera að teikna inn innréttingar þannig það sé hentugt fyrir endurhæfingarþjónustu.“
Ljóst sé að einhver skerðing verði á þjónustunni næstu mánuði, en Guðjón segir að nú geti eins verið tækifæri til að endurskoða endurhæfingarþjónustu um land allt og hvernig megi efla hana.
Vinir Kristnesspítala bjóða á samstöðutónleika um helgina
Hópur velunnara Kristnesspítala í Eyjafirði hefur lýst miklum áhyggjum af því að húsið verði ekki endurnýtt sem endurhæfingarrými og safnaði ríflega 2.500 undirskriftum undir yfirskriftinni: Björgum Kristnesi.
Sami hópur stendur að samstöðutónleikum við spítalann um helgina þar sem markmiðið er að vekja athygli á aðstöðu sem þar hefur verið byggð upp í gegnum árin, eins og endurhæfingarsundlauginni sem safnað var fyrir í kringum aldamót.
Að sögn stjórnenda SAk er enn verið að meta ástand hússins í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið og framtíð þess óráðin.